Markaðurinn
Brauð mánaðarins með stökkri og fallegri áferð
Brauð mánaðarins í október frá Danól er súrdeigsbrauð þar sem IREKS Súrdeigs Cuvée gefur brauðinu gott bragð. Hefun í hveitistráðum brauðkörfum og skurðirnir fyrir bakstur gefa því fallegt, handverkslegt útlit.
Brauðið hentar jafnt á morgunverðarborðið, í samlokur eða með góðri súpu.
Deig
· 8.000 gr Hveiti (900436)
· 2.000 Ireks Súrdeigs Cuvee (101876)
· 150 gr Ireks Frost Platin (101891)
· 260 gr Salt (930201)
· 200 gr Ger
· 6.300 ml Vatn 1
· ca. 500 ml Vatn 2
Samtals 17.390 gr
Tæknilegar upplýsingar
· Vinnslutími: 9 mín hægt + 4 til 9 mín hratt.
· Deighiti: 26°C.
· Hvíltími: ca. 45-60 mín.
· Deigþyngd: 700 gr.
· Heftími: Í kæli yfir nótt, eða ca. 60-75 mín.
· Ofnhiti: 220°C með gufu.
· Baksturstími: ca. 35 mín.
Aðferð
Vatni 1 er öllu bætt út í og hráefnunum blandað saman. Þegar deigið er farið að taka sig er vatni 2 bætt út í smám saman.
Eftir hvíld er deiginu slegið upp og það sett í brauðkörfur sem hafa verið stráðar sigtuðu hveiti. Brauðin eru látin hefast í körfunum.
Fyrir bakstur eru þau tekin úr körfunum og skorin fjórum sinnum á hliðina.
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði





