Markaðurinn
Danól kynnir brauð mánaðarins fyrir júlí 2026
Brauð mánaðarins í júlí er chia-birkibrauð, þar sem kraftmikil blanda af chiafræjum, graskersfræjum og bláu birki gefur brauðinu einstakt útlit og ríkulegt bragð. Brauðið hentar jafnt í morgunverð, í samlokur eða sem meðlæti með góðum mat.
Uppskrift
Athugið: Hráefni sem merkt eru með vörunúmeri fást í vefverslun Danól á vefverslun.danol.is, þar sem hægt er að leita bæði eftir vörunúmeri og vöruheiti.
Fordeig
- 2.000 g heilkornahveiti (960227)
- 70 g Ireks brauðmalt, ljóst (101880)
- 40 g salt (930201)
- 30 g ger
- 1.400 ml vatn
Samtals: 3.540 g
„Smyrja“
- 660 g hveiti (900436)
- 500 g Ireks hveitisúr (101846)
- 1.400 ml vatn
Samtals: 2.560 g
Topping
- Blátt birki (105106)
- Graskersfræ (105411)
Tæknilegar upplýsingar
- Vinnslutími: 9 mín. á hægum hraða + 4–6 mín. á hröðum hraða
- Deighiti: 26 °C
- Hvíltími: um 40 mín.
- Deigþyngd:
- Brauð: 600 g
- Rúnstykki: 100 g
- Hefun: Yfir nótt í kæli eða um 90 mín. í hefskáp
- Ofnhiti: 250 °C við innsetningu, síðan lækkað í 220 °C
- Baksturstími: um 30–40 mín. Opnið spjaldið eftir 20 mín.
Aðferð
Þegar deigið hefur hvílt er það sett á borðið. Vigtið brauðin og sláið þeim upp í hringlótt brauð. Berið „smyrjuna“ á brauðin og veltið þeim upp úr blöndu af graskersfræjum og bláu birki. Látið brauðin hefast í hefskáp eða yfir nótt í kæli og bakið þau að hefun lokinni.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt5 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn7 dagar síðanOstur sem lyktar eins og „sviti og eftirsjá“
-
Markaðurinn1 dagur síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum






