Markaðurinn
Um 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
Ó.J&K – ISAM stóreldhús bauð til veislu og bransahittings á Akureyri í liðinni viku. Um 60 gestir lögðu leið sína á viðburðinn þar sem boðið var upp á fjölbreyttar veitingar og tækifæri til að kynna sér vörur og starfsemi fyrirtækisins.
Guðmundur Geir Hannesson, matreiðslumaður og sölumaður Ó.J&K – ISAM stóreldhús á Norðurlandi, hafði veg og vanda af skipulagningu viðburðarins.
Gestir gátu smakkað á fjölbreyttum veitingum, skoðað vöruúrval fyrirtækisins og átt ánægjulega stund með kollegum úr veitingageiranum.
Að sögn aðstandenda tókst viðburðurinn afar vel og var ánægjulegt að sjá hversu margir lögðu leið sína á staðinn.
Fimm hundruð gestir fögnuðu 30 ára afmæli Lostætis
Guðmundur Geir hafði einnig veg og vanda af skipulagningu 30 ára afmælishátíðar Lostætis, veislu- og veitingaþjónustu, sem haldin var í mötuneyti Alcoa Fjarðaáls í byrjun september.
Um 500 gestir tóku þátt í hátíðarhöldunum þar sem götumatargerð, eða Street Food, var í aðalhlutverki. Boðið var upp á fjölbreyttar kræsingar og var matseðillinn sérlega girnilegur.
Á meðal rétta voru taco með rifnu andakjöti, litlir hamborgarar, bao-bollur með rifnum svínabóg og kjúklingaspjót með satay-sósu. Með réttunum var meðal annars boðið upp á sterkt majónes og fjölbreytt meðlæti.
Afmælishátíðin var því sannkölluð matarveisla þar sem gestir fengu að njóta fjölbreyttra rétta í tilefni þessara tímamóta hjá Lostæti.
Myndir: Facebook / Ó.J&K – ISAM stóreldhús
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni2 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn6 dagar síðanÞrír heimar viskís – frá Skotlandi til Japan og Taívan
-
Markaðurinn2 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Frétt4 dagar síðanMilljörðum varið í að bjarga krám og lífga upp á verslunargötur
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 klukkustundir síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
















