Markaðurinn
Vittorio Agosti frá Fabbri heimsótti Ísland með bragðmiklar nýjungar í samstarfi við ÓJ&K-ÍSAM – Myndir og vídeó
ÓJ&K-ÍSAM hélt, í samstarfi við Fabbri, námskeið í kaffidrykkjum og kokteilum á þriðjudaginn 5. maí síðastliðinn í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Blikastaðavegi 2–8.
Leiðbeinandi námskeiðsins var Vittorio Agosti, vörumerkjasendiherra Fabbri 1905 frá árinu 2003. Hann sýndi gestum fjölbreyttar leiðir til að útbúa kaffidrykki með Fabbri-sírópum og hvernig nýta má sírópin í ísrétti, bragðbætta gosdrykki og kokteila.
Á námskeiðinu voru kynnt tólf mismunandi síróp frá Fabbri, þar á meðal nýjungar á borð við Calamansi, Yuzu, Chai, Pumpkin Spice og ferskjusíróp. Vittorio útbjó fjölbreytta drykki og deildi með gestum hugmyndum að framsetningu og notkun vörunnar fyrir veitingastaði, kaffihús og bari.
Meðal þess sem vakti sérstaka athygli var heitt súkkulaði með pistasíufroðu og sultuðu engiferi. Þar var notað ítalskt kakóduft blandað í heita mjólk ásamt pistasíufroðu sem gerð var með vörunni „Air Velvet & Foam“, sem auðveldar gerð loftkenndrar froðu fyrir drykki og eftirrétti.
Uppskrift að pistasíufroðu
30 ml Fabbri pistasíusósa (35% pistasíur)
60 ml Fabbri Air Velvet & Foam
300 ml mjólk
Öllu er blandað saman í rjómasprautu með gashylki og froðunni síðan sprautað á drykki eða eftirrétti.
Robasto Lorenzo, vörumerkjastjóri Fabbri fyrir drykkjar- og sælkeravörur, kynnti einnig úrval af vinsælum vörum fyrirtækisins, meðal annars íssósur, pistasíukrem, súkkulaði- og kókoskrem, saltkaramellukrem og hina heimsþekktu Fabbri Amarena-kirsuberjavöru sem hefur verið metsöluvara fyrirtækisins í áratugi.
Eggert Jónsson hjá ÓJ&K-ÍSAM skipulagði námskeiðið í samstarfi við Fabbri.
Nánari upplýsingar um vörurnar og uppskriftir veitir: Eggert Jónsson, Netfang: [email protected]
Myndbönd
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanNýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanLitlu hlutirnir skipta mestu máli hjá Agga Sverris
-
Markaðurinn3 dagar síðanLandsliðsmaður kennir listina að búa til gæðapylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanHelliskaffi opnað í Hellisgerði með metnaðarfullar hugmyndir
-
Markaðurinn3 dagar síðanInnnes kynnir nýtt jógúrt frá Frischli
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndband: Stærsta hlaðborð Bandaríkjanna er í litlum sveitabæ í Pennsylvaníu
-
Markaðurinn2 dagar síðanLangar þig að læra að tína villta sveppi?
-
Vín, drykkir og keppni7 klukkustundir síðanFrá síldartunnum til viskítunna







