Markaðurinn
Íslenskir pizzabakarar heilla Ítali
Íslenska pizzasenan hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana en ítalski blaðamaðurinn Alfio Mirone fjallaði nýverið ítarlega um Polselli pizzakeppnina og ferð sína til Íslands í ítalska matar- og drykkjartímaritinu Ciociaria & Cucina.
Í umfjöllun sinni lýsir Alfio Mirone þeirri þróun sem hann telur eiga sér stað hér á landi þar sem íslenskir pizzabakarar nálgist fagið af mikilli alvöru og virðingu fyrir hráefni. Hann segir keppnina hafa sýnt skýrt að á Íslandi sé að myndast öflug pizzamenning þar sem bakarar leitist við að sameina ítalska hefð og eigin túlkun.
Sjá einnig: Fyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins
Sérstaka athygli vakti að þrettán pizzabakarar tóku þátt í keppninni og að mati Mirone endurspeglaði hver pizza persónuleika bakarans, jafnvægi í vinnubrögðum og skilning á deigi, gerjun og bakstri. Þá segir hann íslenska þátttakendur hafa sýnt mikla fagmennsku og metnað gagnvart handverkinu.
Í greininni er einnig fjallað um mikilvægi samstarfsins við ítalska framleiðandann Molino Polselli og Ó.J.&K ISAM sem sá um skipulagningu og framkvæmd keppninnar hér á landi. Alfio Mirone bendir á að verkefnið hafi ekki aðeins snúist um hráefni heldur einnig miðlun þekkingar, þjálfun og tengslamyndun milli fagfólks á Ítalíu og Íslandi.
Hann nefnir jafnframt sérstaklega framlag Paolo Parravano sem hafi gefið keppninni aukið faglegt vægi með reynslu sinni og leiðsögn. Að hans sögn snerist keppnin ekki eingöngu um bragð heldur einnig um skilning á deigi, nákvæmni í bakstri og getu pizzabakara til að laga sig að ólíkum aðstæðum og hráefnum.
Í lok umfjöllunarinnar segir Alfio Mirone að Ísland hafi komið sér á óvart. Hann segir ítalska pizzuhefð geta þróast og aðlagast nýjum aðstæðum án þess að missa uppruna sinn og telur íslensku pizzasenuna vera á réttri leið.
Hægt er að skoða tímaritið í heild sinni með því að
smella hér.
Mynd: Skjáskot úr ítalska tímaritinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn7 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Frétt6 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanKjarnafæði býður allt að 49% afslátt af kjötvörum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun12 klukkustundir síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“




