Keppni
Fyrsta pítsakeppni á Íslandi haldin með þátttöku fremstu pítsubakara landsins

Ismail Mesnaoui, sigurvegari fyrstu pítsakeppni Íslands, með Paolo Parravano frá Polselli og Eggerti Jónssyni, skipuleggjanda keppninnar.
Fyrsta pítsakeppni á Íslandi fór fram 28. apríl í tilraunaeldhúsi ÓJ&K-ÍSAM í samstarfi við ítalska hveitiframleiðandann Polselli. Keppnin vakti mikla athygli og dró að sér fremstu pítsubakara landsins sem kepptu af metnaði og sköpunargleði.
Alls tóku 12 keppendur þátt og var keppt um glæsileg verðlaun, ferð til Ítalíu þar sem sigurvegari fær að sækja námskeið í pítsugerð hjá Polselli. Í keppninni var lögð rík áhersla á gæði, en notkun á frosnu pizzadeigi var óheimil og einungis leyft að nota hágæða hveiti frá Polselli, að því er fram kemur í tilkynningu.
Sigurvegari keppninnar var Ismail Mesnaoui frá Popolare Pizza. Hann heillaði dómara með vel útfærðri pítsu þar sem hann notaði Polselli Super 00 hveiti í deigið.
Á pítsunni voru meðal annars hægeldaðir kirsuberjatómatar, eplakapers, ansjósur, stracciatella-ostur, sítrónutímían, basil og extra jómfrúarólía.
Í öðru sæti varð Michal Józefik frá Mika Restaurant með afar frumlega pítsu.
Deigið var unnið úr blöndu af Polselli Classica og Polselli Super (50/50). Álegg samanstóð af sósu úr skyri og sýrðum rjóma með yuzu, súrsuðum rauðrófum, fersku dilli, stökkum jarðskokkum og graflaxi sem var kryddaður með kakóhýði, sjávarsalti og vodka.
Í þriðja sæti varð Logi Brynjarsson frá Alvotech.
Hann notaði Polselli Classica hveiti og toppaði pítsuna með San Marzano tómötum, Fior di latte osti, sterkri Piccante salami frá Triello, chorizo, tælensku basil frá Vaxa og heimagerðu hot honey.
Dómnefnd keppninnar var skipuð öflugum hópi sérfræðinga:
Paolo Parravano og Remo Nafra frá Polselli, Elínrós Líndal frá Morgunblaðinu og ítalski blaðamaðurinn Alfio Mironi frá Ciociaria e Cucina.
Keppnin var skipulögð af Eggerti Jónssyni frá ÓJK-ÍSAM.
Myndir: aðsendar
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanSex nýir komust í hóp þeirra 299 sem bera virtasta titil vínþjóna í heiminum
-
Frétt7 dagar síðanÁkærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
-
Frétt6 dagar síðanGordon Ramsay, Marco Pierre White og Heston Blumenthal sameinast á ný í nýrri BBC þáttaröð
-
Frétt5 dagar síðanEndurbyggðu veitingastaðinn frá grunni eftir brunann
-
Frétt10 klukkustundir síðanEinkakokkar meðal eftirsóttustu matreiðslumanna heims
-
Frétt2 dagar síðanÍslenskir veitingastaðir sagðir of tregir til að hækka verð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanRoyal Palm South Beach opnar á ný eftir 12,5 milljarða króna endurbætur
-
Frétt12 klukkustundir síðanVanmerkt pestósósa innkölluð úr verslunum Krónunnar





