Markaðurinn
Sumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM
- Eggert Jónsson og Silvia Gaetta
Þann 6. maí stóð Ó.J&K – ÍSAM fyrir vel heppnuðu ísnámskeiði í tilraunaeldhúsi fyrirtækisins þar sem gestir fengu innsýn í nýjustu strauma og lausnir í ísgerð.
Kennari dagsins var Silvia Gaetta sem er ísgerðarleiðbeinandi frá Fabbri og unnið við það í 15 ár ásamt því að reka 2 ísbúðir í London.
Silvia hélt tvö námskeið yfir daginn fyrir fagfólk í veitinga- og ísgerðargeiranum.
Fyrir hádegi var námskeiðið ætlað reyndum ísframleiðendum þar sem Silvia fór yfir fræðin á bak við alvöru ítalskan gelatoís og sýndi hvernig hægt er að búa til hágæða ítalskan ís frá grunni með réttum hráefnum, jafnvægi og vinnubrögðum.
Eftir hádegi var kynnti hún Fabbri Simplé sem er línan sem einfaldar ísgerð til muna. Með Simplé lausninni er hægt að útbúa ferskan ís á aðeins 10–12 mínútum:
Vanilluís
1 hluti Simplé vanilla grunnur
2 hlutar mjólk
Blandað með töfrasprota
Allt sett beint í ísvél
Fyrir mjólkurís er notuð mjólk en fyrir sorbet er notað vatn.
Sítrónusorbet með myntu
1 hluti Simplé sítrónusorbet
2 hlutar vatn
Fersk mynta
Blandað með töfrasprota
Allt sett í ísvél
Á námskeiðinu voru einnig kynntar nýjar ísvélar frá Fabbri Gelato System. Vélarnar eru hannaðar með einfaldleika og sveigjanleika í huga og koma í nokkrum stærðum fyrir mismunandi rekstur. Sérstaka athygli vakti nýr ísvagn sem gerir fyrirtækjum kleift að gera ferskan ís á staðnum og fara á milli staða. Vagninn er búinn rafhlöðu með allt að 8 klukkustunda endingartíma og hentar vel fyrir sölu og viðburði eins og brúðkaup ofl.
Námskeiðið vakti mikinn áhuga meðal gesta og sýndi vel hvernig nútímalausnir geta gert faglega ísgerð bæði einfaldari og aðgengilegri fyrir veitingageirann.
Eggert Jónsson hjá ÓJ&K-ÍSAM skipulagði námskeiðið í samstarfi við Fabbri.
Nánari upplýsingar um vörurnar og uppskriftir veitir Eggert Jónsson á netfanginu: [email protected]
Myndbönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Markaðurinn3 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni4 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins











