Markaðurinn
Námskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
Er þjónustuteymið þitt tilbúið í jólatörnina? Þegar mikið er að gera skipta undirbúningur, skipulag og samstillt þjónustuteymi sköpum.
Þann 27. október heldur Iðan Fræðslusetur námskeiðið „Gerum afgreiðslu að þjónustu“, þar sem farið er yfir grunnþætti faglegrar þjónustu sem nýtast vel í annasömu jólahaldi.
Hver er munurinn á því að afgreiða og þjónusta? Hvernig getur starfsfólk mælt markvisst með því sem hentar gestinum og hvers vegna skiptir máli að allt teymið vinni eftir sama áttavita? Þessar spurningar eru meðal þess sem tekið verður fyrir, ásamt söluvitund, framkomu og flæði þjónustunnar.
Sérstök áhersla er lögð á mikilvægi undirbúnings og skipulags, sameiginleg vinnubrögð og þjónustu við ólíka hópa á veitingastöðum. Þetta eru atriði sem gott er að skerpa á áður en jólahlaðborðin og jólahóparnir taka yfir.
Námskeiðið hentar nýju og óreyndu þjónustufólki jafnt sem starfsfólki sem vill styrkja grunninn. Fyrir veitingamenn og stjórnendur í þjónustu er þetta tækifæri til að undirbúa teymið fyrir jólatörnina með fagmennsku og upplifun gestanna að leiðarljósi.
Nánari upplýsingar og skráning á idan.is.
Mynd: úr safni
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís




