Keppni
Skráning stendur yfir í pizzakeppni með ferð til Ítalíu í verðlaun
Áhugasamir pizzabakarar fá tækifæri til að láta ljós sitt skína síðar í vor þegar pizzakeppni verður haldin dagana 28. og 29. apríl 2026 í tilraunaeldhúsi ÓJK-ÍSAM. Keppnin er haldin í samstarfi við ítalska hveitiframleiðandann Polselli og verður keppt um vegleg verðlaun.
Fyrstu verðlaun eru sérlega eftirsóknarverð. Sigurvegarinn fær ferð til Ítalíu þar sem hann sækir námskeið hjá Polselli og fær jafnframt tækifæri til að heimsækja frægustu pizzastaði í Napólí. Auk þess verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í keppninni.
Keppnin byggir á skýrum reglum. Keppendur þurfa að nota Polselli hveiti við pizzugerðina og koma sjálfir með deigið og allt hráefni sem notað er á pizzuna, ásamt uppskrift. Hver keppandi fær 15 til 20 mínútur til að baka pizzuna. Að því loknu smakka dómarar pizzurnar og gefa þeim einkunn.
Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar um skráningu og reglur hjá Eggerti hjá ÓJK-ÍSAM. Hægt er að hafa samband í síma 856-2762 eða með tölvupósti á [email protected].
-
Keppni4 dagar síðanAlþjóðlegt ævintýri hefst hjá Barþjónaklúbbi Íslands
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanFærri brugghús loka í Bretlandi
-
Frétt7 dagar síðanVarað við skordýrum í dilli
-
Markaðurinn4 dagar síðanRabarbara trifle með stökku krönsi
-
Markaðurinn5 dagar síðanIðan fagnar 20 ára afmæli í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
-
Frétt5 dagar síðanInnihaldsupplýsingar vantar á Krónu pylsur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel2 dagar síðanBig Mamma bætir enn einum staðnum við
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDiageo fer fyrir dómstóla vegna rommbanns





