Keppni
Fremstu vínþjónar Norðurlandanna keppa í Reykjavík

Stjórn Vínþjónasamtaka Íslands. Frá vinstri: Peter Hansen, Alba E. H. Hough og Þorleifur „Tolli“ Sigurbjörnsson.
Keppnin um besta vínþjón Norðurlandanna 2026 fer fram á Hilton Reykjavík sunnudaginn 20. september.
Keppnin er haldin árlega og þar koma saman tveir af fremstu vínþjónum Íslands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar. Þeir takast á um einn virtasta titil vínþjónaheimsins, Besti vínþjónn Norðurlandanna.
Heimur vínsins er bæði víðamikill og flókinn. Starf vínþjónsins krefst þó mun víðtækari þekkingar en margir gera sér grein fyrir. Auk ítarlegrar þekkingar á léttvíni þurfa vínþjónar meðal annars að kunna góð skil á sterku víni, bjór, kaffi, tei og matarmenningu víðs vegar að úr heiminum.
Markmið keppninnar er að draga fram þá miklu þekkingu og fagmennsku sem einkennir vínþjónastarfið. Keppendur verða reyndir í fjölbreyttum þáttum starfsins og látnir leysa krefjandi verkefni þar sem kunnátta þeirra og reynsla verður í forgrunni.
Keppnin er jafnframt hátíð norræna vínþjónasamfélagsins. Fagfólki úr hótel- og veitingageiranum, vínáhugafólki og öðrum áhugasömum er boðið að fylgjast með keppninni og njóta vínsýningar í boði samstarfsaðila Vínþjónasamtaka Íslands.
Áhorfendur geta fylgst með úrslitunum á sviði, þar sem þrír efstu keppendurnir leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni áður en besti vínþjónn Norðurlandanna 2026 verður krýndur.
Keppnin hefst klukkan 14.00 og stendur til klukkan 18.00. Vínþjónasamtök Íslands standa að viðburðinum.
Mynd: Vínþjónasamtök Íslands
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn3 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt2 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni6 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



