Markaðurinn
Secret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu
Þurrkaður ananas er nýjasta viðbótin í Secret Garden vörulínuna hjá Drykkur heildsölu. Í byrjun árs hóf fyrirtækið innflutning á þurrkuðum ávöxtum frá vörumerkinu og bauð þá upp á fjórar tegundir. Með viðbótinni verður úrvalið enn fjölbreyttara og mætir vaxandi áhuga á þurrkuðum ávöxtum í drykki og matargerð.
Secret Garden var þróað í nánu samstarfi við barþjóna, barista og drykkjarsérfræðinga. Í úrvalinu eru varlega loftþurrkaðar sneiðar af appelsínum, sítrónum, súraldinum og bleikum greipaldinum og nú einnig ananas. Ávextirnir eru þurrkaðir án viðbættra rotvarnarefna eða annarra aukefna, með mildri aðferð sem dregur fram náttúrulegt bragð þeirra og ilm.
Útkoman er fjölhæf vara með langan geymslutíma og fallegt útlit sem hentar bæði fagfólki og heimakokkum.
Fjölbreytt notkun í drykki og matargerð
Þurrkaðir ávextir eru meira en fallegt drykkjaskraut. Þeir henta í kokteila, óáfenga drykki, kaffi, te og bragðbætt vatn, auk þess að setja skemmtilegan svip á salöt, eftirrétti og aðra matargerð. Þá má einnig njóta þeirra einna og sér sem snarls.
Þurrkaður ananas bætir suðrænum blæ við úrvalið og opnar nýja möguleika fyrir þá sem vilja leika sér með bragð og framsetningu.
Minni sóun og einfaldari undirbúningur
Fyrir bari, kaffihús og veitingastaði geta þurrkaðar ávaxtasneiðar einfaldað undirbúning og auðveldað skömmtun. Sneiðarnar eru tilbúnar til notkunar og langur geymslutími getur stuðlað að minni matarsóun.
Þannig er auðvelt að hafa fjölbreytt úrval ávaxta við höndina og skapa samræmda framsetningu drykkja og rétta allt árið.
Hluti af vaxandi úrvali Drykkur heildsölu
Stækkun Secret Garden vörulínan er hluti af áframhaldandi uppbyggingu vöruúrvals hjá Drykkur heildsölu. Markmið fyrirtækisins er að bjóða fjölbreyttar lausnir fyrir bari, veitingastaði og aðra aðila í mat- og drykkjargeiranum, með gæði, hagkvæmni og faglega þjónustu að leiðarljósi.
Kynntu þér úrvalið á www.drykkur.is eða hafðu samband við söluteymi Drykkur heildsölu í gegnum [email protected] eða í síma 517-7500.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Keppni2 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni5 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau






