Frétt
Kornax innkallar Kanilsnúðaköku
Matvælastofnun varar við tveimur framleiðslulotum af Kanilsnúðaköku frá Kornax vegna plastbita sem er aðskotahlutur í vörunni. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna. Plastbitinn var í kanilsykurpoka sem fylgdi með kökublöndunni.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarnar framleiðslulotur:
- Vörumerki: Kornax
- Vöruheiti: Kanilsnúðakaka
- Nettómagn: 475g
- Strikamerki: 5690453977919
- Best fyrir dagsetning: 18.08.2026 og 10.11.2026
- Lotunúmer: 15012534403 og 15012546102
- Framleiðandi: Valsemøllen A/S, Esbjerg, Danmörku fyrir Lífland ehf.
- Innflutningsfyrirtækið: Lífland ehf., Brúarvogur 1-3, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Krónan, Bónus, Hagkaup, Stórkaup, Fjarðarkaup, IKEA, Kaupfélag vestur Húnvetninga, KaupfélagSkagfirðinga, Hlíðarkaup, Melabúðin, Verslun Einars Ólafssonar, Hraðbúðin Hellissandi, Víkurval og Verslunin Fjölval.
Kaupendur skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila til verslunar Líflands í Korputorgi í Reykjavík.
Mynd: mast.is
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun16 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um




