Frétt
Ólöglegt varnarefni fannst í Pinkids eplum
Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Pinkids eplum frá Pink lady með uppruna í Chile sem Bananar ehf. fluttu inn vegna ólöglegs varnarefnis Bifenthrin. Varnarefni fannst við innra eftirlit framleiðandans. Fyrirtækið hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vöruna af markaði.
Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna lotu:
- Vörumerki: Pink Lady
- Vöruheiti: PinKids
- Strikamerki: 3700476661534
- Lotunúmer og best fyrir dagsetning: L261409305/L3505
- Nettómagn: 550 g
- Framleiðandi: SARL Mesfruits, Cacaillon, Frakkland
- Innflytjandi: Bananar ehf., Kornagarður 1, 104 Reykjavík.
- Dreifing: Verslanir Bónus.
Neytendur sem keypt hafa vöruna skulu ekki neyta hennar heldur farga eða skila í næstu Bónusverslun.
Mynd: mast.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn4 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni6 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun7 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Frétt3 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn6 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




