Viðtöl, örfréttir & frumraun
Frá eldhúsinu til heimsfrægðar: Anthony Bourdain á hvíta tjaldið
Fyrsta stiklan fyrir kvikmyndina Tony, sem byggð er á lífi bandaríska matreiðslumannsins og sjónvarpsmannsins Anthony Bourdain, hefur vakið mikla athygli frá því hún var birt á YouTube fyrr í þessum mánuði. Samkvæmt mbl.is hafa rúmlega tíu milljónir manna þegar horft á stikluna.
Myndin segir frá Bourdain á yngri árum, aðeins 19 ára gömlum, þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í matreiðsluheiminum. Leikarinn Dominic Sessa, sem margir þekkja úr kvikmyndinni The Holdovers, fer með hlutverk Bourdain í myndinni. Með önnur hlutverk fara meðal annars Emilia Jones, Rich Sommer, Leo Woodall og Antonio Banderas. Áætlað er að myndin verði frumsýnd í ágúst.
Bourdain var um árabil yfirkokkur á veitingastaðnum Brasserie Les Halles á Manhattan og naut mikillar virðingar í faginu. Hann varð síðar heimsþekktur fyrir bækur sínar og ferðatengda matreiðsluþætti þar sem hann kynnti sér matarmenningu víða um heim.
Anthony Bourdain lést í júní árið 2018, 61 árs að aldri.
Mynd: úr safni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins




