Frétt
Anthony Bourdain látinn
Kokkurinn og matargagnrýnandinn Anthony Bourdain er látinn, 61 árs að aldri.
Frá þessu greinir mbl.is sem vísar í yfirlýsingu frá CNN. Þar kemur fram að Bourdain hafi svipt sig lífi.
„Með ótrúlegri sorg í hjarta staðfestum við að vinur okkar og samstarfsmaður, Anthony Bourdain, er látinn,“
segir í yfirlýsingu frá CNN.
Bourdain var staddur í Frakklandi þegar hann lést, þar sem hann vann að tökum á nýjum þætti fyrir verðlaunaða sjónvarpsþætti sína á CNN.
Samkvæmt fréttinni fann vinur hans og samstarfsmaður, Eric Ripert, hann látinn á hótelherbergi sínu í morgun.
Bourdain var um árabil einn þekktasti sjónvarpskokkur heims og naut mikilla vinsælda fyrir þætti sína um matarmenningu, ferðalög og veitingastaði víðs vegar um heiminn.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Pistlar7 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




