Áhugavert
Þrír sólarhringar í Nuuk
Frá flatköku með hangikjöti í Keflavík að grillaðri sauðnautasteik í Nuuk. Sigurður Einarsson matreiðslumeistari segir frá þremur sólarhringum í höfuðborg Grænlands.
Ferðin hófst í Saga Lounge í Keflavík. Ég ferðast töluvert með Icelandair og verð að viðurkenna að mér þykir veitingaúrvalið þar orðið dálítið þreytt. Pastaréttur, ostar, salat, ólífur og vorrúllur. Maður þekkir orðið úrvalið. En í þetta sinn voru flatkökur með hangikjöti á borðinu og skál með baunasalati. Flatkakan minnti mann að minnsta kosti á hvar maður var staddur. Mér finnst að þar mætti gera meira úr íslenskum mat. Það er ágætt tækifæri til landkynningar á meðan fólk bíður eftir flugi.
Flug FI115 tók um tvo og hálfan tíma og við lentum í Nuuk um hálfátta að staðartíma, í ljósaskiptunum. Ég hafði hægt um mig um kvöldið. Það mátti bíða til morguns að sjá hvernig höfuðborgin liti út í björtu.
Hvítir kokkajakkar á fimmtu hæð
Ég gisti á Hotel Hans Egede. Að utan er það kassalaga hús, eins og svo mörg í Nuuk, en innandyra bar endurnýjunin vott um metnað. Morgunverðurinn var fjölbreyttur og frábær. Það sem ég tók strax eftir var að starfsfólkið í veitingasalnum og eldhúsinu var allt í stífpressuðum hvítum kokkajökkum og svörtum buxum. Það var snyrtilegur bragur á þessu.
Veitingasalirnir eru á fimmtu og efstu hæð og þaðan er mikið útsýni yfir bæinn. Seinnipartinn tekur A Hereford Beefstouw við morgunverðarsalnum. Á sömu hæð er Sarfalik, sem maður nálgast eftir löngum gangi. Ég borðaði á báðum stöðum og á báðum fékk ég að smakka það sem mig hafði sérstaklega langað til að prófa á Grænlandi, sauðnaut.
Veiði dagsins á Kalaaliaraq (Brættet)
Eftir morgunverð fór ég á stúfana og leitaði að Brættet, markaðnum þar sem veiðimenn selja afurðir af landi og úr sjó. Þar úði og grúði af alls kyns fiski. Ég sá hreindýrahryggi, innmat, sel og hvalkjöt, og svo ýmislegt sem ég gat með engu móti borið kennsl á. Ég heyrði grænlensku talaða við borðin og þar mátti ekki taka myndir. Fyrir matreiðslumann var heimsóknin vel þess virði. Þar gat ég séð með eigin augum hvað lá á borðum hjá veiðimönnunum.
Það var stillt í veðri og örlítil hálka þegar ég hélt áfram um bæinn. Miðbærinn liggur að mestu á láglendi, en það er stutt í langar og brattar trétröppur upp á milli húsa. Ég þrammaði um fram eftir degi og kom líka við í Brugseni. Úrvalið af matvörum þar fannst mér fyllilega á pari við það sem við eigum að venjast heima.
Í hádeginu fór ég á Nivi, nýlegan tapasstað. Þar var rólegt um að litast. Ég fékk mér lambaspjót með asískri sósu og fersku salati. Bragðið var gott, en lambið var ólseigt og salatið svo gróft að mér datt helst í hug að maður þyrfti heykvísl til að koma því upp í sig.
Fallegur matur á Sarfalik
Á Sarfalik var þjónustan hlý og heimilisleg. Fyrst kom lystauki, þurrkað sauðnaut borið fram á herðarblaði. Það smakkaðist mjög vel og villibragðið var milt. Þá kom nýbakað brioche-brauð með þeyttu brúnuðu smjöri, skemmtilega fram borið. Forrétturinn, hörpuskel og snjókrabbi ásamt marineruðum laxi, smakkaðist líka vel.
Aðalrétturinn var innbakaður hreindýravöðvi með rótargrænmeti og sætkartöflumús. Diskurinn var fallegur en mér fannst brögðin of mörg. Hreindýrið fékk ekki að njóta sín eins og ég hafði vonast til og réttinn vantaði karakter. Þarna varð mér hugsað til þess hvað fagurfræði og bragð geta farið sitt hvora leiðina. Lystaukinn sat betur í minningunni en aðalrétturinn.
Frá Route 66 að grillinu á Hereford
Á sunnudeginum fór ég á Bone’s í verslunarmiðstöðinni Nuuk Center. Þessi staður hefði getað orðið á vegi mínum hvar sem var á Route 66. En þarna sat ég í Nuuk og borðaði klassísk BBQ-svínarif. Þau smökkuðust bara þrælvel.
Eftir hádegi tók ég lengstu strætóleiðina sem ég fann og var um klukkutíma á ferð. Þá áttaði ég mig betur á því hve lítið undirlendi er utan miðbæjarins. Húsin og blokkirnar voru víða með svipuðu sniði, og ég tók eftir fjölda báta sem þegar voru komnir á land fyrir veturinn. Þegar maður sér hve fjöllin þrengja að byggðinni er auðvelt að skilja hvað góður bátur getur skipt miklu máli, hvort sem menn ætla á ókunnar slóðir eða bara í sumarbústaðinn sinn.
Um kvöldið fór ég á Hereford. Þar var þjónustan óformlegri en á Sarfalik og jafnframt vingjarnleg. Kokkar stóðu við stórt grill og grilluðu eins og enginn væri morgundagurinn. Það var augljóst að þeir kunnu til verka. Matseðillinn kom á blaði og maður merkti sjálfur við það sem maður vildi fá.
Sauðnaut skyldi það vera. Ég pantaði 225 gramma steik, medium rare, með bakaðri kartöflu. Steikin kom fullkomlega elduð og með mildu kryddsmjöri. Kjötið var fíngert, afar meyrt og nánast laust við villibragð. Eiginlega svona sælgæti. Að smakka sauðnaut var ein af ástæðunum fyrir því að ég fór til Grænlands. Þarna fékk ég það eins og ég hafði vonast til.
Síðasti dagurinn í Nuuk
Á mánudagsmorgni hafði snjóað meira um nóttina og enn var stillt. Ég skilaði herberginu klukkan tíu og átti góðan tíma fram að kvöldflugi. Ég tók aðra strætóferð og ætlaði síðan á þjóðminjasafnið en kom að lokuðum dyrum. Mér fannst eins og ferðamannasumrinu væri að mestu lokið um miðjan október.
Heimflugið var um hálfníu um kvöldið. Út hafði ég flogið með Boeing 737 MAX 8 en heim fór ég með Boeing 757. Heimferðin tók tæpa tvo tíma.
Nuuk er með rólegri höfuðborgum sem ég hef heimsótt. Ég hafði alltaf tengt Grænland við sleðahunda og bjóst við að sjá einhverja. Á þessum þremur sólarhringum sá ég einn hund. Það var þýskur fjárhundur.
Með þessari ferð lokaði ég hringnum mínum um Norðurlönd og norðurslóðir. Að baki eru Færeyjar, Noregur, Danmörk, Svíþjóð, Finnland, Álandseyjar, Hjaltlandseyjar og Svalbarði. Nú hefur Grænland bæst við og minningasjóðurinn hefur stækkað.
Sigurður Einarsson, matreiðslumeistari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni4 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni4 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn5 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt2 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Frétt4 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn3 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?



















