Áhugavert
Myndir: Hálf öld frá útskrift úr Hótel- og veitingaskólanum
Föstudaginn 4. september kom saman hópur matreiðslumanna sem útskrifaðist úr Hótel- og veitingaskólanum árið 1976. Tilefnið var hálfrar aldar útskriftarafmæli hópsins.
Jóni B. Sveinssyni, fyrrverandi kennara hópsins, og Ólafi Erni Ólafssyni, sem var prófdómari við Hótel- og matvælaskólann um árabil, var einnig boðið til samverunnar.
Dagurinn hófst á Kjarvalsstöðum þar sem hópurinn gæddi sér á dönsku smørrebrød að hætti Marentzu Poulsen.
- Danskt smørrebrød að hætti Marentzu Poulsen var á boðstólum á Kjarvalsstöðum.
- Góð stemning ríkti þegar útskriftarhópurinn kom saman á Kjarvalsstöðum og rifjaði upp gamla tíma.
Þaðan var haldið í Sjómannaskólann, þar sem verkleg kennsla matreiðslunemanna fór fram á sínum tíma.
Í húsnæðinu fer nú fram tölvu- og margmiðlunarkennsla Tækniskólans og fátt, ef nokkuð, minnir lengur á eldhúsið og veitingasalinn sem þar voru áður.
Gömul Rafha-eldavél vakti athygli
Næst heimsótti hópurinn varðskipið Óðin, sem smíðað var árið 1959. Vildarvinir skipsins tóku á móti gestunum og leiddu þá um varðskipið.
- Útskriftarhópurinn ásamt fyrrverandi kennurum sínum um borð í varðskipinu Óðni.
- Hópurinn yfirgefur varðskipið Óðin að lokinni fróðlegri heimsókn um borð.
Sérstaka athygli vakti að um borð er enn Rafha-eldavél af þeirri gerð sem var algeng þegar hópurinn var við nám.
Að heimsókninni lokinni var haldið í undirbúningseldhús veitingastaðarins Hafnarinnar, þar sem aðstaðan var skoðuð. Þar fengu gestir meðal annars að smakka milljónbuff úr nautalundum.
Deginum lauk síðan með glæsilegum kvöldverði á Höfninni hjá Brynjari, eiganda staðarins, en hann var í hópi matreiðslunemanna sem útskrifuðust árið 1976.
„Dagurinn verður okkur öllum ógleymanlegur. Eftir langan starfsferil var af mörgu að taka, rifja upp og ræða. Glens, gaman og góðar minningar einkenndu þessa einstöku samveru,“
segir Sigurður Einarsson matreiðslumeistari.

Frímann Sveinsson matreiðslumeistari, einn úr útskriftarhópnum og Listamaður Norðurþings 2026, tók upp gítarinn og lék fyrir félaga sína á Höfninni.
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn2 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn1 dagur síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Markaðurinn3 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins












