Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ísak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
Ísak Aron Jóhannsson, fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins og kokkur ársins 2026, hefur sent frá sér nýja matreiðslubók sem ber heitið Bragð.
Hugmyndin að bókinni hefur lengi verið Ísaki hugleikin en í henni safnar hann saman uppskriftum sem hann hefur þróað í gegnum árin, að því er fram kemur á mbl.is. Auk uppskrifta leggur hann áherslu á að miðla þekkingu, ráðum og aðferðum sem geti hjálpað fólki að skilja betur það sem gerist við matreiðsluna.
Íslenskt hráefni í forgrunni
Bókin er ætluð jafnt byrjendum sem reynslumeira fólki í eldhúsinu og eru uppskriftirnar af mismunandi erfiðleikastigi. Þar má einnig finna ýmis ráð úr atvinnueldhúsinu.
Ísak segir við mbl.is að íslenskt hráefni sé rauður þráður bókarinnar. Þar megi finna áhrif frá æsku sinni á Suðureyri, störfum hans í atvinnueldhúsum hér heima og erlendis, auk reynslu hans úr keppnismatreiðslu.
Reynsla úr Michelin-eldhúsum og keppnismatreiðslu
Ísak starfaði meðal annars á Michelin-stjörnuveitingastöðunum Hotel Helvie í Suður-Frakklandi og Texture í London.
Hann gekk til liðs við íslenska kokkalandsliðið árið 2019 og tók síðar við sem fyrirliði liðsins. Kokkalandsliðið hafnaði í þriðja sæti á Ólympíuleikum matreiðslumeistara árið 2024.
Heimsmeistaramótið fram undan
Ísak hefur í nógu að snúast þessa dagana enda er hann fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins sem undirbýr sig nú fyrir heimsmeistaramótið í Lúxemborg í lok nóvember.
Meðal rétta í Bragði eru lamba-prime og vestfirsk hörpuskel, grillað brokkolí með eldpiparsalati og ostakremi, eftirréttur úr rabarbara, mjólkursúkkulaði og myntu, auk brasseraðs lambaframparts sem Ísak segir einn þeirra rétta sem fólk ætti sérstaklega að prófa.
Nánar er fjallað um Ísak Aron, feril hans og tilurð bókarinnar Bragð á mbl.is.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt3 dagar síðanMálmbiti fannst í skinku frá Stjörnugrís
-
Markaðurinn2 dagar síðanIðan leggur áherslu á samtal við fagfólk á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn2 dagar síðanVissir þú? …að Pappírssalan er ekki bara með pappír?




