Keppni
Ísak Aron Jóhannsson er Kokkur ársins 2026 – úrslit úr öllum keppnum
Í dag fór fram úrslitakeppnin um titilinn Kokkur ársins 2026. Að lokinni keppni fór verðlaunaafhending fram við hátíðlega athöfn á NASA í Hótel Parliament, þar sem úrslitin voru kunngjörð rétt í þessu:
1. sæti – Ísak Aron Jóhannsson
2. sæti – Hugi Rafn Stefánsson
3. sæti – Wiktor Pálsson
Klúbbur matreiðslumeistara á veg og vanda að keppnunum Kokkur ársins, Grænmetiskokkur ársins og Sjávarréttakeppni sem haldnar voru um helgina í húsakynnum IKEA. Keppnirnar heppnuðust afar vel og skapaði IKEA glæsilega og faglega umgjörð þar sem gestir fengu tækifæri til að fylgjast náið með.
Kokkur ársins haldinn í þrítugasta sinn
Keppnin um Kokk ársins var haldin í þrítugasta sinn í ár og markar það mikilvæg tímamót í íslenskri matreiðslu. Frá upphafi hefur Bjarki Hilmarsson, yfirkokkur á Hótel Geysi, haft umsjón með keppninni og gegnt lykilhlutverki í þróun hennar og uppbyggingu.
Í úrslitum um Kokk ársins kepptu Ísak Aron Jóhannsson frá Múlakaffi, Guðmundur Halldór Bender frá Mister Iceland, Hugi Rafn Stefánsson frá Black Sand Hótel, Wiktor Pálsson frá Nomy veisluþjónustu og Hinrik Örn Halldórsson frá Lóla Restaurant.
Eins og áður segir þá stóð Ísak Aron Jóhannsson uppi sem sigurvegari og hlaut titilinn Kokkur ársins 2026. Í öðru sæti varð Hugi Rafn Stefánsson og í þriðja sæti Wiktor Pálsson.
Þorlákur Sigurðsson Grænmetiskokkur ársins
Í keppninni um Grænmetiskokk ársins kepptu Bjarni Ingi Sigurgíslason frá Fröken Reykjavík, Rúnar Atli Wiium frá Fiskfélaginu, Þorlákur Sigurðsson frá Lóla, Monica Daniela Panait frá Hótel Geysi og Einar Arnbjargarsson. Sigurvegari var Þorlákur Sigurðsson, í öðru sæti varð Bjarni Ingi Sigurgíslason og í þriðja sæti Rúnar Atli Wiium.
Alexander Brynjarsson sigraði í nýrri keppni
Í Sjávarréttakeppni bar Alexander Brynjarsson frá Hótel Geysi sigur úr býtum. Í öðru sæti varð Aron Elvar Bjarkason, einnig frá Hótel Geysi, og í þriðja sæti Kaayam Gurung frá Monkeys. Aðrir keppendur voru Claudio Sohan frá Hótel Selfoss og Anna Morris.
Aðstoðarmaður keppninnar valinn í fyrsta skipti
Nemar í matreiðslu frá Menntaskólanum í Kópavogi aðstoðuðu við keppnina í ár eins og undanfarin ár bæði sem aðstoðarmenn keppenda sem og á baksvæði keppninnar.
Í fyrsta skipti í sögu keppninnar var valin aðstoðarmaður keppninnar en eldhúsdómarar völdu þann nema sem þótti standa sig best í eldhúsinu. Guðlaug A Snorradóttir Cruz var valin aðstoðarmaður keppninnar en Guðlaug er nemi í grunndeild MK.
Mikilvægur vettvangur fyrir íslenskt matreiðslufólk
„Það er einstaklega ánægjulegt að sjá þann mikla metnað og fagmennsku sem keppendur sýna ár eftir ár. Keppnin er mikilvægur vettvangur fyrir íslenskt matreiðslufólk til að þróa sig áfram og sýna hvað í þeim býr.
Umgjörðin í IKEA var til fyrirmyndar og þátttakan sýnir að greinin er í miklum blóma“
segir Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara.
Bjarki Hilmarsson segir keppnina hafa þróast mikið í gegnum árin:
„Það er ótrúlegt að sjá hversu langt þessi keppni hefur komið á þessum 30 árum. Gæðin aukast með hverju árinu og keppendur leggja sífellt meira í undirbúning og framsetningu. Það er ljóst að framtíð íslenskrar matreiðslu er björt.“
Keppnishelgin staðfesti enn á ný þann mikla styrk, fagmennsku og metnað sem einkennir íslenskt matreiðslufólk og mikilvægi slíkra viðburða fyrir þróun greinarinnar.
Myndir: Hafliði Breiðfjörð
-
Keppni4 dagar síðanÍslenskir nemar keppa á Norrænu nemakeppninni í Svíþjóð
-
Bocuse d´Or3 dagar síðan„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanNýlegur veitingastaður og aukin áhersla á heildarupplifun hjá Bragðlaukum
-
Starfsmannavelta3 dagar síðanLamb Street Food og Mat Bar hætta rekstri
-
Markaðurinn4 dagar síðanLærðu að fanga augnablikið: Myndagerð fyrir samfélagsmiðla í veitingageiranum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanPítsuofninn kominn á GOTT eftir lokun Pítsugerðarinnar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun10 klukkustundir síðanRúnar snýr aftur á Hótel Holt sem yfirkokkur
-
Markaðurinn4 dagar síðanNámskeið: Ægir Friðriksson matreiðslumaður kennir flökun á fiski










