Keppni
Þrjátíu ár við stjórnvölinn – Bjarki Hilmarsson heiðraður

Þórir Erlingsson, forseti Klúbbs matreiðslumeistara, afhendir Bjarka Ingþóri Hilmarssyni sérstaka viðurkenningu.
Á lokahófi keppninnar Kokkur ársins 2026, sem fram fór við hátíðlega athöfn á NASA í Parliament Hótel í gær, var Bjarka Ingþóri Hilmarssyni veitt sérstök viðurkenning fyrir framlag hans til keppninnar í gegnum árin.
Í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara kemur fram að Bjarki hafi frá upphafi haft yfirumsjón með keppninni og gegnt lykilhlutverki í þróun hennar, uppbyggingu og framkvæmd.
„Undir hans stjórn hefur keppnin fest sig í sessi sem ein sú virtasta innan íslenskrar matargerðar,“
segir meðal annars í tilkynningunni.
Þar er einnig bent á að Bjarki hafi lagt ríka áherslu á fagleg vinnubrögð, sanngjarnt matsferli og stöðuga þróun keppninnar í takt við alþjóðleg viðmið. Framlag hans hafi þannig haft mikil áhrif á stöðu keppninnar í dag og þann sess sem hún skipar í íslensku faglífi.
Viðurkenningin markaði jafnframt tímamót, en þetta var í 30. sinn sem Bjarki hefur haft yfirumsjón með keppninni. Að sögn klúbbsins hefur hann með elju og fagmennsku haft áhrif á fjölmarga matreiðslumenn og þróun greinarinnar hér á landi.
Gestir á lokahófinu fögnuðu þessum áfanga og þökkuðu Bjarka fyrir framlag hans til íslenskrar matargerðar.
Mynd: Hafliði Breiðfjörð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn5 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn5 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn5 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Markaðurinn4 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn2 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag
-
Frétt6 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku



