Viðtöl, örfréttir & frumraun
Söfnuðu rúmlega þremur milljónum fyrir fjölskyldur í Nepal

Ólöf Helga Jakobsdóttir, Árni Þór Arnórsson og Guðfinna Guðmundsdóttir, matreiðslumeistarar og félagar í Klúbbi matreiðslumeistara, lögðu sitt af mörkum við góðgerðarhlaðborðið til stuðnings Nepal.
Góðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum sem urðu fyrir barðinu á mannskæðum flóðum og aurskriðum í Nepal var haldið í húsnæði Mjólkursamsölunnar við Bitruháls í Reykjavík laugardaginn 12. september.
Viðburðurinn var haldinn að frumkvæði Nepali Association of Iceland í samstarfi við World Chefs Without Borders og Klúbb matreiðslumeistara.
Sjá einnig: Góðgerðarhlaðborð til stuðnings fjölskyldum í Nepal
Fjöldi fólks mætti á staðinn til að sýna samstöðu, njóta nepalskrar matargerðar og leggja góðu málefni lið. Á hlaðborðinu var boðið upp á fjölbreytt úrval rétta, meðal annars lambakarrí, kjúklingakarrí, grænmetiskarrí, kjúklingavængi, momo, sel roti, naanbrauð, basmati hrísgrjón, nepalskt achar og tómatachutney.
Fjölmargir lögðu hönd á plóg
Félagar úr Klúbbi matreiðslumeistara mættu á staðinn og lögðu hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd viðburðarins. Fjölmargir sjálfboðaliðar frá Nepali Association of Iceland tóku einnig þátt.
Framlag þeirra, ásamt vinnu annarra sjálfboðaliða og stuðningi gesta, átti stóran þátt í því hversu vel tókst til.
Alls söfnuðust rúmlega þrjár milljónir króna sem renna til hjálparstarfs í Nepal. Fjármunirnir verða nýttir til að styðja fólk og fjölskyldur sem hafa misst heimili sín, eigur og ástvini í hamförunum og eru í brýnni þörf fyrir mat, húsaskjól, læknisaðstoð og aðrar nauðsynjar.
Þakkir til allra sem lögðu verkefninu lið
Árni Þór Arnórsson matreiðslumeistari og formaður World Chefs Without Borders þakkaði félagsmönnum Klúbbs matreiðslumeistara, skipuleggjendum, sjálfboðaliðum, Mjólkursamsölunni og öllum þeim sem mættu eða lögðu verkefninu lið.
Sérstakar þakkir færði hann þeim sem studdu viðburðinn með mætingu og fjárframlögum.
Viðburðurinn sýndi vel hvað hægt er að áorka þegar ólíkir hópar sameinast um að hjálpa fólki í neyð.
Myndir: aðsendar
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn1 dagur síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember













