Vertu memm

Markaðurinn

Endurnýjaðu ræstibúnaðinn fyrir veturinn

Birting:

þann

Endurnýjaðu ræstibúnaðinn fyrir veturinn

Rekstrarvörur bjóða fyrirtækjum að láta verðmeta eldri ræstibúnað og nýta inneignina við kaup á nýjum búnaði. Uppítökutilboðið gildir út september 2026 og tekur til eldri búnaðar óháð framleiðanda.

Á veitingastöðum, hótelum, kaffihúsum og í mötuneytum eru þrif stór hluti af daglegum rekstri. Búnaðurinn þarf að henta rýminu, álaginu og þeim tíma sem starfsfólk hefur til verksins.

Haustið er því góður tími til að fara yfir ræstibúnaðinn og skoða hvort eldri búnaðurinn henti enn þörfum staðarins – eða hvort tækifæri sé til að einfalda þrifin með nýrri lausn.

Gamli búnaðurinn getur nýst upp í nýjan

Í uppítökutilboði Rekstrarvara er eldri ræstibúnaður metinn eftir tegund og ástandi og inneignin nýtt við kaup á nýjum búnaði.

Það getur verið einföld endurnýjun, til dæmis að skipta eldri ræstivagni út fyrir nýjan Filmop ræstivagn eða eldri gólfþvottavél fyrir nýja Wetrok gólfþvottavél.

Uppítakan getur líka verið tækifæri til að breyta því hvernig þrifin eru unnin. Gamall ræstivagn getur til dæmis farið upp í Wetrok Spin BeFree gólfþvottavél, eða eldri gólfþvottavél upp í LionsBot gólfþvottaþjarka.

Frá ræstivagni yfir í sjálfvirk gólfþrif

Endurnýjaðu ræstibúnaðinn fyrir veturinn

Filmop býður fjölbreytt úrval ræstivagna sem hægt er að aðlaga að ólíkum vinnustöðum og þrifaverkefnum. Rétt uppsettur vagn auðveldar starfsfólki að hafa áhöld, efni og annan búnað við höndina við dagleg þrif.

Fyrir staði þar sem vélræn gólfþrif henta betur er úrval Wetrok gólfþvottavéla í mismunandi stærðum og útfærslum. Þar á meðal er Spin BeFree, nett gólfþvottavél sem getur verið góður kostur þegar færa á hluta gólfþrifa úr handvirkri ræstingu yfir í vélrænan þvott.

Þegar um stærri gólffleti og regluleg þrif er að ræða er einnig hægt að skoða sjálfvirkar lausnir. LionsBot gólfþvottaþjarkar geta séð um fyrirfram ákveðin þrif sjálfstætt á meðan starfsfólk sinnir öðrum verkefnum.

Hvaða lausn hentar ræðst meðal annars af stærð og gerð rýmis, gólfefnum, umfangi þrifa og vinnulagi á hverjum stað.

Persónuleg ráðgjöf fyrir hvern vinnustað

Ráðgjafar Rekstrarvara fara yfir þarfir hvers vinnustaðar, skoða núverandi búnað og aðstoða við að finna lausn sem hentar rýminu og daglegum þrifum.

Allar fyrirspurnir um uppítökutilboðið og verðmat á eldri búnaði fara í gegnum ráðgjafa Rekstrarvara.

Sími: 520 6666
Netfang: [email protected]

Uppítökutilboðið gildir út september 2026

Samhliða uppítökunni er 35% afsláttur af völdum Filmop ræstivögnum og 20% afsláttur af Wetrok gólfþvottavélum.

Uppítökuverð fer eftir tegund og ástandi gamla búnaðarins og er hvert tilfelli metið sérstaklega.

Nánari upplýsingar um uppítökutilboðið má finna á RV.is.

Ef þú hefur áhuga á að auglýsa hér á veitingageirinn.is, hafðu þá samband við okkur á netfangið [email protected] og við sendum til baka allar upplýsingar. ... smellið hér til að lesa fleiri fréttir og tilkynningar frá styrktaraðilum vefsins.

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið