Markaðurinn
Snædís Xyza keppir í Bocuse d’Or Europe í dag

F.v. Jónas Guðmundsson, viðskiptastjóri Rekstrarvara, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Bocuse d’Or kandídat Íslands, Marlís Jóna Karlsdóttir, aðstoðarmaður og Björn Kári Björnsson, sölustjóri Rekstrarvara.
Rekstrarvörur eru stoltur styrktaraðili Bocuse d’Or Ísland og hafa stutt við íslenska kokkalandsliðið undanfarin ár. Með samstarfinu vilja Rekstrarvörur leggja sitt af mörkum til að efla íslenska matarmenningu og styðja við fagfólk í veitingageiranum.
Í dag fer Bocuse d’Or Europe fram í Marseille í Frakklandi þar sem fremstu kokkar Evrópu etja kappi í einni virtustu og krefjandi matreiðslukeppni heims. Snædís Xyza keppir þar fyrir Íslands hönd ásamt aðstoðarkokkinum Marlís.
Rekstrarvörur styðja við bakið á íslenska liðinu og veita aðgang að rekstrarvörum og lausnum sem nýtast í undirbúningi og æfingum fyrir keppnina. Fyrirtækið þjónustar veitingastaði, stóreldhús og fyrirtæki um allt land með fjölbreytt úrval rekstrarvara og lausna fyrir daglegan rekstur.
Fulltrúar Rekstrarvara fengu nýlega að fylgjast með Snædísi, Marlís og teyminu á æfingu þar sem undirbúningur fyrir keppnina var í fullum gangi. Þar var greinilegt hversu mikill metnaður og fagmennska liggur að baki þátttöku Íslands í keppninni.
Bocuse d’Or var stofnuð árið 1987 af franska meistarakokknum Paul Bocuse og er almennt talin ein virtasta matreiðslukeppni heims. Keppnin í Marseille er undankeppni fyrir heimsúrslitin í Bocuse d’Or sem haldin verða í Lyon í Frakklandi.
Rekstrarvörur óska Snædísi og öllu teyminu góðs gengis í keppninni í dag og hlakka til að fylgjast með Íslandi á meðal fremstu kokka Evrópu.
-
Keppni3 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni6 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Keppni3 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Frétt4 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni5 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð
-
Markaðurinn4 dagar síðanSecret Garden vörulínan stækkar hjá Drykkur heildsölu



