Vertu memm

Bocuse d´Or

Konráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“

Birting:

þann

Konráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“

Konráð Hilmarsson

Þátttaka Íslands í undankeppni Bocuse d’Or í Marseille dagana 15. og 16. mars vakti verðskuldaða athygli, þar sem Snædís Xyza Mae Jónsdóttir tryggði sér sæti í úrslitum keppninnar sem fram fara á næsta ári. Á bak við sviðið starfaði öflugt teymi, þar á meðal Konráð Hilmarsson sem gegndi lykilhlutverki sem aðstoðarmaður.

Konráð er nýútskrifaður úr Hótel- og matvælaskólanum, þó hann hafi þurft að fresta sveinsprófi vegna þátttöku sinnar í verkefninu. Hann segir tækifærið hafa komið í gegnum samstarfsfélaga sína.

„Ég var í þriðja bekk á sama tíma og Sædís Hui og Jakob og það voru þau sem fengu mig í liðið eftir að þeim bauðst að taka þátt,“

segir hann í samtali við veitingageirinn.is.

Hlutverk Konráðs í liðinu var frábrugðið því sem margir gætu haldið. Hann sinnti þróun og framleiðslu á sérhæfðum verkfærum fyrir keppnina með aðstoð þrívíddarhönnunar og prentunar.

„Hlutverkið mitt var að hanna form sem notuð eru í keppninni. Ég bjó til 3D teikningar sem ég prentaði út og hellti svo sílikoni í. Einnig þróaði ég 3D-prentuð kerfi sem auðvelduðu hlutverk Snædísar og Marlísar í búrinu, til dæmis útskurðarmót og önnur verkfæri,“

útskýrir hann.

Undirbúningurinn var krefjandi og tímanotkun lykilatriði. Konráð segir mikilvægt að hafa hafist handa snemma með 3D vinnuna þar sem ferlið taki langan tíma.

„Það skipti miklu máli að koma öllu sem tengdist 3D sem fyrst í gang. Síðan nýtti ég tímann á milli verkefna vel, til dæmis á meðan ég beið eftir prentun eða að sílikon stífnaði, þá hjálpaði ég til við uppstillingu þegar ég gat.“

Spurður um stærsta lærdóminn stendur eitt upp úr. „Það er klárlega það sem ég lærði í 3D hönnun. Ég hefði aldrei giskað á að ég myndi hafa áhuga á því, en eftir að hafa lært á þetta hef ég haft sífellt meira gaman af því.“

Konráð staðfestir að hann verði áfram hluti af liðinu þegar haldið verður til úrslita í Lyon árið 2027.

„Já, ég verð áfram með og bíð spenntur eftir því,“

segir hann.

Konráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“

Þegar keppnisverkefninu lýkur hyggst hann leita sér nýrra áskorana erlendis.

„Það er stefnan að fara út að vinna, mjög líklega til Danmerkur,“

segir Konráð, sem útilokar ekki frekari þátttöku í keppnisheiminum.

„Ég myndi hundrað prósent vilja vera áfram í kringum Bocuse í framtíðinni, sérstaklega með eitthvað sem tengist 3D.“

Aðspurður hvað hafi staðið upp úr í allri upplifuninni segir hann tilfinninguna þegar niðurstöðurnar lágu fyrir hafa verið ógleymanlega.

„Það var að sjálfsögðu að heyra að Ísland hefði komist áfram í keppninni.“

Konráð Hilmarsson um Marseille: „Skemmtilegast var að heyra að Ísland væri komið áfram“

Jakob Árni Kristinsson, Konráð Hilmarsson og Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir

Hann hvetur aðra sem hafa áhuga á að taka þátt sem aðstoðarmenn að láta vaða, jafnvel án mikillar reynslu.

„Þó það hjálpi að hafa reynslu þá er það ekki nauðsynlegt. Ég var varla með reynslu í keppnismatreiðslu þegar ég byrjaði.“

Utan eldhússins hefur nýtt áhugamál tekið yfir.

„Eftir þetta tímabil er 3D hönnun líklega orðið mitt helsta áhugamál fyrir utan eldhúsið,“

segir Konráð Hilmarsson að lokum.

Myndir: úr einkasafni

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:
Auglýsingapláss

Mest lesið