Bocuse d´Or
Stórskotalið íslenskra Bocuse d’Or kokka sameinast á styrktarkvöldi
Styrktarkvöldverður verður haldinn til heiðurs og stuðnings við Snædísi Xyzu Jónsdóttur, sem á dögunum tryggði sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or, sem fram fara í janúar 2027 í Lyon í Frakklandi. Um er að ræða eitt stærsta verkefni íslenskrar matreiðslu á alþjóðavettvangi og undirbúningur þegar hafinn af fullum krafti.
Kvöldverðurinn fer fram á veitingastaðnum EIRIKSDÓTTIR laugardaginn 18. apríl næstkomandi og er liður í fjáröflun fyrir Snædísi og teymi hennar, sem keppir fyrir hönd Íslands í þessari virtu heimsmeistarakeppni einstaklinga í matreiðslu.
Að sögn aðstandenda verður kvöldið glæsilegt í alla staði. Sérvalin eðalvín verða pöruð við matseðil kvöldsins og verður sannkallað stórskotalið í eldhúsinu. Allir kokkarnir sem koma að kvöldinu eiga það sameiginlegt að hafa keppt fyrir Íslands hönd í Bocuse d’Or og búa því yfir mikilli reynslu af keppninni.
Dagskráin hefst klukkan 18:00 með fordrykk og smáréttum, áður en kvöldverðurinn sjálfur tekur við. Þá verður einnig boðið upp á uppboð á völdum árgangsvínum þar sem gestum gefst færi á að næla sér í eftirsóttar flöskur og styðja um leið við bakið á íslenska keppnisliðinu.
Hægt er að panta borð á Dineout.is.
Kvöldið er einstakt tækifæri til að upplifa matargerð á hæsta stigi og leggja sitt af mörkum til verkefnis sem vekur athygli langt út fyrir landsteinana.

F.v. Friðgeir Ingi Eríksson, Þráinn Freyr Vigfússon, Sigurjón Bragi Geirsson, Sindri Guðbrandur Sigurðsson, Viktor Örn Andrésson og Sturla Birgisson
Matseðill og ártal vísa til þess hvenær kokkurinn keppti í Bocuse d’Or:
Canapés
Hákon Már Örvarson – 2001
– Reyktur áll · andalifur
Sigurður Laufdal – 2013 og 2021
– Gnocchi fritti · Jamón Ibérico · Parmigiano · truffluhunang
Sigurður Helgason – 2015
– Túnfiskur · gerjuð plóma
Réttir
Sigurjón Bragi Geirsson – 2023
– Bleikja · tómatar · wasabi
Viktor Örn Andrésson – 2017
– Humar · jarðskokkar · estragon
Þráinn Freyr Vigfússon – 2011
– Sandvíkur rófur, Bakað skyr · súrdeigsstökk · reykt andaregg · brúnað smjör
Sindri Guðbrandur Sigurðsson – 2025
– Þorskur · ígulker · grasker · hafþyrnir · grænar ertur
Snædís Xyza Jónsdóttir – 2027
– Nautalund · Cuttelfish · humar aioli (Réttur úr forkeppni Bocuse d´Or 2026)
Eftirréttur
Friðgeir Ingi Eríksson – 2007 · Sveinn Þorri Þorvaldsson
– Pavlova „Eiríksdóttir“, Ætiblóm · blómate · ástaraldin · vanilla
49.900kr. matur og vínpörun
Myndir: úr einkasafni
-
Markaðurinn3 dagar síðanPierre Koffmann heimsótti Finnsson í Kringlunni – Myndaveisla
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanReynir Grétarsson opnar Dinner á LYST á Akureyri – „Við viljum hækka standardinn aðeins í mat og þjónustu.“
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanMichel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
-
Markaðurinn4 dagar síðanSumarið er tíminn fyrir ís – Myndir og myndbönd frá ísnámskeiði Fabbri og ÓJ&K – ÍSAM
-
Markaðurinn4 dagar síðanNýtt vörumerki hjá Nathan: Arco
-
Markaðurinn3 dagar síðanÞessi vefja með grillosti er fullkomin fyrir léttan kvöldmat
-
Starfsmannavelta2 dagar síðanHagabakarí kveður eftir áratugi í Hraunbergi
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskir pizzabakarar heilla Ítali





