Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Þráinn Freyr: „Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt“
Nýr veitingastaður bætist við flóru veitingastaða í miðborginni á næstu vikum þegar Sel opnar dyr sínar á Laugavegi 28. Að baki verkefninu stendur Þráinn Freyr Vigfússon, matreiðslumeistari og einn eigenda Sumac og ÓX, ásamt samstarfsfólki sínu.
Í samtali við veitingageirinn.is segir Þráinn að Sel sé hugsaður sem léttari og aðgengilegri systurstaður ÓX.
„Sel er hugsaður sem litla systir ÓX, léttari og meira casual.“
Nafnið á rætur sínar að rekja til íslenskra leitarkofa og skála á hálendinu.
„Þetta eru kofar sem oft eru kallaðir sel og við vildum vísa í þá stemningu.“
Stefnt er að opnun 15. maí ef allt gengur að óskum. Hugmyndin að staðnum hefur verið lengi í vinnslu, en varð að veruleika þegar hentugt rými losnaði í sama húsi og ÓX.
„Ég hef lengi gælt við þessa hugmynd að opna systurstað við ÓX. Þegar þetta rými losnaði, sem er mjög samtvinnað baksvæði ÓX, lá beint við að nýta það og búa til eitthvað skemmtilegt.“
Matargerðin á Sel byggir á grunni ÓX en með frjálslegri nálgun.
„Við munum nota vopnabúrið af uppskriftum frá ÓX, blanda því við nýjar áherslur og leyfa okkur að fara aðeins út fyrir kassann. Það verða bæði asísk og frönsk áhrif, með fókus á íslenskt hráefni,“
segir Þráinn.
Upplifunin verður einfaldari og styttri en á ÓX. Boðið verður upp á fastan fjögurra til fimm rétta smakkseðil sem breytist á tveggja vikna fresti. Gestir geta einnig bætt við svokölluðum snack-réttum eða jafnvel fengið einn til tvo rétti af matseðli ÓX hverju sinni.
„Hugmyndin er að bjóða upp á léttari upplifun, bæði í lengd og uppsetningu,“ útskýrir hann.
Sel verður með alls 39 sæti, þar af sjö við eldhúsbar, 24 í sal og átta í lounge. Opnunartími verður frá miðvikudegi til laugardags, frá klukkan 17.30.
Eldhúsið verður stýrt af Þráni sjálfum ásamt Aroni Leevi Þrastasyni, en í þjónustunni verður Manuel Schembri yfirþjónn. Vínmálin verða í höndum Önnu Rodyukova og verður vínlistinn að miklu leyti byggður á sama grunni og hjá ÓX, þó með auknu úrvali vína í glösum. Ekki verður boðið upp á hefðbundnar vínpörunar, heldur velja gestir sjálfir vín með matnum.
Þá verður einnig lögð áhersla á sérhannað leirtau, en Þráinn hefur lengi unnið með Aldísi Báru Sigurðardóttur sem hannar diska fyrir staðinn, líkt og hjá ÓX. Kokteilaseðillinn verður í höndum David Hood.
Sel er hugsaður fyrir breiðan hóp mataráhugafólks, bæði Íslendinga og erlenda gesti.
„Við vonumst til að ná til þeirra sem komast ekki að á ÓX eða vilja ekki fara í alla þá upplifun,“ segir Þráinn.
Aðspurður hvað hann hlakki mest til við opnunina er svarið einfalt.
„Það er bara allt. Það er alltaf spennandi að skapa eitthvað nýtt,“
Segir Þráinn Freyr Vigfússon að lokum, en hann var staddur erlendis í miðri rannsóknarferð fyrir Sel þegar viðtalið var tekið.
Myndir: úr einkasafni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur matreiðslumaður fær Michelin-viðurkenningu fyrir nýjan veitingastað í Vilníus
-
Keppni5 dagar síðanFagfólk skaraði fram úr í árlegri tertukeppni Kaffi Krúsar og Konungskaffis
-
Markaðurinn5 dagar síðanEftirrétturinn sem kaffiunnendur hafa beðið eftir
-
Frétt5 dagar síðanEiturþörungar dafna vel í sjónum, varað við kræklingatínslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanSilli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
-
Markaðurinn4 dagar síðanLaus störf í eldhúsi á fjögurra stjörnu hóteli við Öræfajökul
-
Markaðurinn4 dagar síðanÍslandshótel leita að hótelstjóra fyrir Hótel Reykjavík Askja
-
Markaðurinn3 dagar síðanÞjónn óskast á Fosshótel Reykholt í Borgarfirði










