Vín, drykkir og keppni
Bransa kvöld á Sumac á sunnudag
Næstkomandi sunnudag, 26. apríl, stendur Klúbbur framreiðslumeistara fyrir svokölluðu bransa kvöldi á veitingastaðnum Sumac við Laugaveg. Viðburðurinn fer fram á milli klukkan 19 og 21 og er öllum opinn.
Að sögn skipuleggjenda verður boðið upp á léttar veitingar og vín, auk þess sem happy hour verður á barnum. Markmiðið er að skapa afslappað andrúmsloft þar sem fólk í faginu og aðrir áhugasamir geta hist, spjallað og tengst.
Kvöldið er einnig hugsað sem vettvangur til að kynna það sem fram undan er hjá klúbbnum og gefa innsýn í starfsemi hans á næstunni. Þetta er því gott tækifæri fyrir bæði reynslumikla og nýja í greininni að kynnast starfinu og fólkinu á bak við það.
Áhugasamir geta fengið frekari upplýsingar með því að senda fyrirspurn á netfangið [email protected].
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMyndasafn: Stóreldhúsið 2026 vel sótt í Laugardalshöll
-
Markaðurinn5 dagar síðanStóreldhússvið Danól verður Vistró
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanFimmtán vín hljóta Gyllta Glasið 2026
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanArnór Ingi og fjölskylda opna Laut í Norræna húsinu – sjáðu matseðilinn hér
-
Áhugavert4 dagar síðanÞrír sólarhringar í Nuuk
-
Frétt6 dagar síðanQR-matseðill uppfyllti ekki reglurnar
-
Frétt5 dagar síðanVanilludropar Bónuss teknir úr sölu
-
Markaðurinn1 dagur síðanVel heppnaður haustfagnaður hjá John Lindsay




