Viðtöl, örfréttir & frumraun
Michel Chapoutier heimsækir Ísland og heldur vínkvöld á Eiríksson Brasserie
Franski vínframleiðandinn Michel Chapoutier, eigandi hins virta vínhúss M. Chapoutier, kemur til Íslands í maí og verður heiðursgestur á sérstökum vínviðburði á Eiríksson Brasserie. Kvöldið fer fram þann 15. maí 2026 klukkan 19:00 og verður um að ræða glæsilegt Winemakers Dinner þar sem matargerð og vín fara saman í gegnum fimm rétta upplifun.
Að baki viðburðinum stendur Friðgeir Ingi Eiríksson, eigandi Eiríksson Brasserie, sem hefur sett saman metnaðarfullt kvöld í samstarfi við M. Chapoutier. Friðgeir hefur látið hanna sérstakan matseðil þar sem hver réttur er paraður með innfluttum vínum frá vínhúsinu. Áherslan er á fágað hráefni, vandaðar vínparanir og upplifun þar sem gestir fá að kynnast bæði matargerð hússins og heimsþekktum Rhône-vínum Chapoutier.
Kvöldið hefst á þremur canapé-réttum. Þar má nefna svarta vatnsdeigsbollu með reyktri ýsu, sítrusgrafna bleikju með peru, gúrku og bleikjuhrognum, ásamt íslensku wasabi-arancini með túnfiski. Með því verður boðið upp á Esteban Sparkling 2023.
Í framhaldinu tekur við fimm rétta matseðill þar sem meðal annars verður boðið upp á hörpuskel carpaccio og kanadískan humar með trufflum og yuzu-epli, gufusoðna lúðu með fennel og heslihnetuemulsíon, mjólkurkálf með myrkilsveppum og Black Angus nautalund með villisveppa ravíólí og trufflum. Kvöldinu lýkur síðan með Valrhona súkkulaði og mjúkum marengs.
Með hverjum rétti verða sérvalin vín frá M. Chapoutier borin fram, þar á meðal Hermitage Blanc Chante-Alouette 2021, Saint-Joseph Les Granits Blanc 2021 og Ermitage Rouge Les Greffieux 2007.
M. Chapoutier er eitt þekktasta vínhús Frakklands og hefur áratugum saman verið leiðandi í framleiðslu vína frá Rhône-héraði. Michel Chapoutier sjálfur er þekktur fyrir sterka sýn á lífræna og lífefldaræktaða vínframleiðslu og hefur notið mikillar virðingar meðal vínáhugafólks um allan heim.
Verð á kvöldinu er 29.900 krónur og má búast við að áhugi verði mikill meðal mat- og vínunnenda hér á landi.
-
Frétt2 dagar síðanMatreiðslumeistarinn Dóra Svavarsdóttir: Ferðalag skreiðarinnar er umfangsmikið og margbrotið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanÍsak Aron gefur út matreiðslubókina Bragð
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanSHIRO, NO.17 og ĒN opna í miðborg Reykjavíkur
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanBoðið í ferð fyrir fagfólk í veitingageiranum
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanHaustborgarinn á Grill 66 er með kóresku „kicki“
-
Keppni6 dagar síðanNegroni hlaupið lífgar upp á Austurvöll
-
Keppni7 dagar síðanManuel Schembri vann brons fyrir Íslands hönd
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun24 klukkustundir síðanAurore: „Ég varð mjög nostalgísk þetta kvöld“




