Bocuse d´Or
„Ég var glaður og þakklátur fyrir að vera partur af þessu teymi“ segir Jakob Árni
Að standa við hlið keppanda á sviði Bocuse d’Or er reynsla sem fáir fá að upplifa. Fyrir Jakob Árna Kristinsson, starfsmann á Grand Hotel Reykjavík, var þátttakan dýrmæt reynsla sem mun nýtast honum áfram, þegar var sem aðstoðarmaður Snædísar Xyza Mae Jónsdóttur í undankeppni keppninnar sem fram fór í Marseille dagana 15. og 16. mars.
Þar tryggði Snædís sér sæti í úrslitakeppninni sem fer fram í Lyon á næsta ári.
Jakob segir áhuga sinn á matreiðslu hafa kviknað snemma.
„Ég var alltaf að hjálpa pabba að elda og bróðir minn var líka þjónn og sýndi mér oft myndbönd úr eldhúsinu á veitingastaðnum sem hann vann á,“
segir hann í samtali við veitingageirinn.is. Í dag starfar hann á Grand Hotel Reykjavík og útskrifaðist í desember 2025, en stefnir á að taka sveinspróf á næstunni.
Tækifærið til að taka þátt í Bocuse d’Or verkefninu kom óvænt.
„Ég fékk símtal frá Marlís í miðjum verklegum tíma í skólanum og þá sagði hún mér að hún væri að fara í Bocuse með Snædísi. Ég spurði strax hvort ég gæti verið með í teyminu og fékk svar nokkrum tímum síðar,“
segir Jakob.
Hann segir ferlið hafa kennt sér gríðarlega mikið, sérstaklega þegar kemur að þróun, vinnubrögðum og uppsetningu í keppniseldhúsi. Þegar hann er spurður hvaða augnablik standi upp úr nefnir hann tvo punkta.
„Auðvitað þegar við komumst áfram og einnig þegar við stilltum upp öllum plöttunum í síðustu myndatökunni og sáum hversu langt við vorum komin.“
Á keppnisdeginum sjálfum reyndi mest á einbeitinguna.
„Það var krefjandi að fylgjast með keppninni og halda fókus,“
segir hann. Þegar ljóst var að Snædís hefði tryggt sér sæti í Lyon lýsir hann tilfinningunni einfaldlega.
„Ég var glaður og þakklátur fyrir að hafa verið partur af þessu geggjaða teymi.“
Reynslan hefur haft mikil áhrif á Jakob sem fagmann.
„Hún hefur breytt mér mjög mikið, sérstaklega í skipulagningu og þróun á mat,“
segir hann. Hann staðfestir einnig að hann verði áfram hluti af liðinu fyrir úrslitakeppnina í Lyon árið 2027.
Aðspurður um fyrirmynd innan íslenska veitingabransans stendur svarið ekki á sér. „Snædís Xyza Mae Ocampo,“ segir hann, enda hefur samstarfið við hana haft djúpstæð áhrif.
Utan eldhússins hefur Jakob fjölbreytt áhugamál. Hann segist hafa gaman af því að prófa sig áfram heima, til dæmis með gerjun og koji, auk þess sem hann semur tónlist og ver tíma með vinum sínum.
Að lokum á hann einfalt en mikilvægt ráð til matreiðslunema sem eru að stíga sín fyrstu skref í faginu.
„Að spyrja nóg af spurningum.“
Myndir: úr einkasafni
-
Markaðurinn4 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Markaðurinn5 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Keppni3 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði







