Markaðurinn
Er kominn tími til að leggja moppunni?
Rekstrarvörur kynna Wetrok Spin BeFree, netta og þráðlausa gólfþvottavél sem er að slá í gegn í veitingageiranum. Hún sameinar lipurð moppunnar og kraft gólfþvottavélar og hentar sérstaklega vel þar sem þrif þurfa að gerast hratt, oft og án þess að trufla starfsemina.
Þeir sem vinna í veitingageiranum þekkja þetta vel. Fita og matarleifar á eldhúsgólfinu, svört för þar sem umferðin er mest og óhreinindi sem setjast í flísar og fúgur.
Svo eru það þrifin sem þarf að grípa í strax. Eitthvað hellist niður á miðri vakt, salurinn þarf yfirferð á milli anna eða það þarf að þrífa á meðan gestir eru enn á staðnum. Þá þarf búnaðurinn að vera bæði öflugur og einfaldur í notkun.
Það er einmitt þar sem Wetrok Spin BeFree hefur verið að slá í gegn.
Gríptu í hana þegar þarf
Spin BeFree er nett og þráðlaus gólfþvottavél sem sameinar lipurð moppunnar og kraft gólfþvottavélar. Hún skrúbbar gólfið með bursta eða púða og sogar óhreina vatnið upp jafnóðum – í stað þess að óhreina vatnið verði eftir á gólfinu.
Með aðeins 37 cm vinnubreidd kemst hún auðveldlega á milli borða, um þröng rými, inn á salerni og á svæði þar sem stærri gólfþvottavélar verða fljótt fyrirferðarmiklar.
Fyrir veitingastaði, kaffihús, bakarí og hótel er það stór kostur. Það þarf ekki að gera stórt verkefni úr því að fara yfir ákveðið svæði. Það er hægt að grípa í vélina þegar þarf, klára verkið og halda áfram.
Eftir morgunverðarhlaðborðið. Yfir salinn áður en næsti hópur kemur. Inn í eldhús þegar þarf að vinna á fitu og þrálátum óhreinindum. Eða á fjölförnum svæðum sem þurfa reglulega yfirferð yfir daginn.
Ný lausn sem er strax farin að sanna sig
Spin BeFree er tiltölulega ný lausn frá svissneska framleiðandanum Wetrok, en reynslan af henni hefur þegar verið mjög góð þar sem þrifin eru tíð, umferðin mikil og starfsemin heldur áfram á meðan.
Í daglegri notkun hefur sérstaklega verið horft til léttari vinnubragða, minna líkamlegs álags og þess hversu auðvelt er að koma vélinni að þar sem plássið er lítið.
Það er ekki tilviljun. Spin BeFree er með framdrifi og vinnuvistvænu gripi sem léttir undir við notkun. Í samanburðarprófi IFGM á þremur sambærilegum handstýrðum gólfþvottavélum kom Spin BeFree best út þegar vinnuvistfræði var metin.
Nýjungin hefur líka fengið viðurkenningu innan faggeirans og hlaut Purus Innovation Award 2025 í flokki ræstivéla.
Meira en bara snögg þrif
Þótt stærðin og lipurðin séu það sem vekur fyrst athygli er Spin BeFree ekki bara hugsuð fyrir það sem hellist niður á miðri vakt.
Vélræn þrif geta skipt miklu þar sem fita, svört för og önnur óhreinindi eru farin að sitja í gólfinu. Bursti eða púði vinnur á yfirborðinu á meðan óhreina vatnið er tekið upp jafnóðum.
Það getur verið sérstaklega gagnlegt í veitingarekstri þar sem sömu gólfin fá mikla umferð og reglulega yfirferð, dag eftir dag.
Gamli ræstivagninn upp í Spin BeFree
Núna er líka sérstaklega góður tími til að skoða hvort Spin BeFree gæti hentað á þínum stað.
Út september er Wetrok Spin BeFree á 20% afslætti hjá Rekstrarvörum og gamall ræstivagn getur skilað allt að 50.000 kr. inneign upp í vélina.
Við tökum við eldri ræstivögnum óháð framleiðanda og uppítökuverð fer eftir tegund og ástandi.
Sjáðu hana í verki
Það er hægt að lesa langa upptalningu á eiginleikum gólfþvottavélar. Við viljum frekar vita hvað þú ert að glíma við á þínum stað.
Ráðgjafar Rekstrarvara hafa mikla þekkingu á faglegum ræstingum og geta farið yfir aðstæður, gólfefni og núverandi þrif með þér. Þaðan finnum við hvaða búnaður og aðferð hentar best.
Og Spin BeFree? Hana er einfaldast að sjá í verki.
Hafðu samband í 520 6666, á [email protected] eða við þinn ráðgjafa hjá Rekstrarvörum og við sýnum þér hvað hún getur gert.
Skilaðu gamla og fáðu nýtt á betra verði.
Tilboðið gildir út september 2026.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt5 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni1 dagur síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Markaðurinn3 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast
-
Frétt3 dagar síðanBrikk súkkulaðikaka innkölluð




