Viðtöl, örfréttir & frumraun
Íslenskur matreiðslumeistari leiðir Chefs Without Borders
Á alheimsþingi Worldchefs, Alþjóðasamtaka matreiðslumanna, sem fram fer þessa dagana, tók Árni Þór Arnórsson, formaður KM Reykjavík, formlega við formennsku nefndarinnar Chefs Without Borders, eða Kokka án landamæra.
Í tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara kemur fram að Chefs Without Borders er alþjóðleg mannúðar- og hjálparnefnd á vegum Worldchefs sem vinnur að verkefnum tengdum neyðaraðstoð, matvælaöryggi og samfélagslegri ábyrgð matreiðslumanna um allan heim.
Nefndin hefur meðal annars komið að stuðningi við samfélög sem hafa orðið fyrir áhrifum náttúruhamfara, stríðsátaka og annarra hamfara, auk þess að efla samstöðu matreiðslumanna þvert á landamæri.
Það er mikill heiður fyrir Árna Þór, sem og fyrir Klúbb matreiðslumeistara, að honum hafi verið treyst fyrir þessu mikilvæga alþjóðlega hlutverki. Skipun hans endurspeglar það traust og þá virðingu sem íslenskir matreiðslumenn njóta á alþjóðavettvangi.
Mynd: úr einkasafni
-
Markaðurinn7 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn7 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn7 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað
-
Keppni3 dagar síðanNorræna nemakeppnin í matreiðslu og framreiðslu haldin á Akureyri í fyrsta sinn
-
Keppni3 dagar síðanMargrét Gunnarsdóttir sigraði í Kornax-nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanAllt að 55% afsláttur í nóvember
-
Markaðurinn4 dagar síðanStóreldhúsið 2026 opnar á fimmtudag




