Frétt
Fisk Kompaní festir kaup á Betri vörum
Fisk Kompaní á Akureyri hefur fest kaup á Betri vörum ehf. á Ólafsfirði, samkvæmt frétt kaffid.is. Með kaupunum styrkir fyrirtækið stöðu sína á markaði fyrir gæða sjávarafurðir og eykur framboð á vörum úr laxi og silungi úr landeldi.
Betri vörur hafa um árabil sérhæft sig í áframvinnslu á ferskum laxi og silungi fyrir innlendan markað, þar á meðal fyrir verslanir, hótel og veitingastaði. Meðal framleiðslu eru vinsælar vörur á borð við birkireyktan lax og grafinn lax sem hafa fest sig í sessi sem vönduð matvara.
Í frétt kaffid.is kemur fram að með sameiningunni sé stefnt að því að efla vöruúrval og nýta sameiginlega þekkingu fyrirtækjanna, auk þess að auka dreifingu vörulínunnar á næstu misserum.
Nánar má lesa um málið á kaffid.is.
Mynd: aðsend
-
Markaðurinn6 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni2 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn7 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Keppni5 dagar síðanFramúrskarandi fagfólk dæmir bestu eftirrétti og konfektmola ársins
-
Frétt3 dagar síðanFjögurra áratuga samstarfi KFC og Pepsi lýkur
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanFrá skólabekknum á Michelin-stjörnu veitingastaði
-
Keppni2 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Vín, drykkir og keppni3 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð




