Vertu memm

Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel

Atli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri

Birting:

þann

Atli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri

Atli Snær Rafnsson og Einar Örn Einarsson

Kjúklingastaðurinn Chikin hefur opnað á Glerártorgi á Akureyri. Staðurinn býður uppá djúpsteiktan kjúkling og er maturinn undir áhrifum frá bæði Bandaríkjunum og Kóreu.

Það eru þeir Atli Snær Rafnsson og Einar Örn Einarsson sem hafa skapað Chikin konseptið.

Einar Örn hefur áratuga reynslu af rekstri veitingastaða, en hann stofnaði Serrano árið 2002 og er framkvæmdastjóri Zócalo, sem rekur m.a. veitingastaði í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn. Atli Snær er matreiðslumeistari og hefur unnið til margra verðlauna fyrir matargerð sína. Hann stofnaði veitingastaðina Kore.

Atli og Einar Örn hafa unnið saman síðustu ár. Atli Snær er rekstrarstjóri á Wok to Walk þar sem Einar Örn hefur verið framkvæmdastjóri og Atli Snær hafði einnig yfirumsjón með stórum breytingum á öllum mat á Zócalo í vetur.

“Við höfum lengi velt fyrir okkur þeim möguleika að opna saman kjúklingastað. Ég hef verið að segja Atla hvaða kjúklingavængir og borgarar mér finnast góðir og hann hefur alltaf haldið því fram að hann gæti gert betur. Svo ég fékk hann með mér í þetta verkefni til að hann gæti sannað að hann kynni að gera besta kjúklinginn”

segir Einar Örn.

“Að mínu mati er fátt betra en djúpsteiktur kjúklingur og ég hef stúderað þessa tegund af mat mikið, bæði með hefðbundnum amerískum hætti og líka á stöðum sem hafa mikil áhrif frá Kóreu. Djúpsteiktur kjúklingur býður uppá svo mikla möguleika og það erum við að sýna hér á Chikin.”

Segir Atli Snær.

Atli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri

Nýi veitingastaðurinn Chikin er staðsettur á Glerártorgi á Akureyri.

Til að byrja með mun staðurinn einbeita sér að tveimur kjúklingaborgurum, tveimur vefjum, vængjum, frönskum og örfáum smáréttum.

“Þetta þarf ekki að vera flókið. Við viljum einbeita okkur að því að gera fáa hluti, en gera þá virkilega vel”

segir Atli Snær.

Rekstraraðilar Chikin Á Akureyri eru hjónin Ásrún Nicole Guðmundsdóttir og Kenji Kanan. En fyrir reka þau Wok to Walk á Akureyri.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið