Frétt
Veitingastaðurinn Strikið rýmdur eftir að eldur kom upp
Slökkviliðið á Akureyri var kallað út laust fyrir klukkan 8.30 í morgun vegna elds á efstu hæð Alþýðuhússins við Skipagötu 14.
Samkvæmt frétt RÚV kviknaði eldur í millivegg við veitingastaðinn Strikið. Starfsmaður varð eldsins var og náði að ráða niðurlögum hans að mestu áður en slökkviliðið kom á vettvang.
Slökkviliðsmenn opnuðu vegginn og slökktu í þeim glæðum sem eftir voru. Húsið var rýmt á meðan á aðgerðum stóð en ekki reyndist þörf á að reykræsta það.
Aðgerðum lauk skömmu eftir klukkan 9.
Vigfús Ólafur Bjarkason, varðstjóri hjá Slökkviliði Akureyrar, sagði í samtali við RÚV að skjót viðbrögð starfsmannsins hefðu skipt höfuðmáli.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanLaugarás Lagoon fagnar eins árs afmæli með þriggja daga hátíð
-
Markaðurinn3 dagar síðanNámskeið: Hvernig tryggjum við góða þjónustu í jólaösinni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanVélmenni sjá um matarbakka í nýju hátæknieldhúsi Icelandair
-
Markaðurinn2 dagar síðanÍslenskur mascarpone fær súkkulaðibragð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanHermann Svali krýndur Kjötmeistari Íslands 2026 – „Ég ætlaði mér alltaf að verða kokkur“
-
Markaðurinn2 dagar síðanFoodCycler FC-75 – Snjöll úrgangslausn fyrir fyrirtæki og vinnustaði
-
Keppni3 dagar síðanLeó og Pétur keppa fyrir Íslands hönd í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanNathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins




