Viðtöl, örfréttir & frumraun
Silli kokkur heldur norður með smassborgara og villibráð
Silli kokkur er á flakki um Norðurland með sinn vinsæla matarvagn en hann mun heimsækja Sauðárkrók, Siglufjörð, Akureyri og Egilsstaði. Heimsóknir hans hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og margir eiga sér sína uppáhaldsrétti þegar vagninn kemur í bæinn. Að þessu sinni verður þó einnig boðið upp á nýjung sem Silli vonast til að falli í góðan jarðveg hjá gestum.
Í tilefni af komu Silla kokks til Siglufjarðar hafði bæjarvefurinn í Fjallabyggð, Trolli.is, samband við hann og spurði út í heimsóknirnar norður. Silli segir að hann og fjölskylda hans hafi komið til Siglufjarðar þrisvar til fjórum sinnum á ári undanfarin fjögur ár.
„Það hefur alltaf verið vel tekið á móti okkur. Allir boðnir og búnir að hjálpa, græja og gera og það hefur alltaf verið vel mætt hjá okkur,“
segir hann.
Nýr Black Garlic-borgari á matseðlinum
Þótt margir fastagestir eigi sína uppáhaldsrétti verður einnig boðið upp á nýjung í þessari heimsókn.
„Við verðum með nýjan hamborgara sem heitir Black Garlic. Þetta er smasshamborgari með hvítlauks- og svepparjómaosti, svissuðum lauk, iceberg-salati, nachosi og Sillasósu.“
Þrátt fyrir nýjungina eru það tveir réttir sem virðast alltaf njóta sérstakra vinsælda meðal Siglfirðinga.
„Gæsin og hreindýrið eru alltaf vinsæl,“
segir Silli.

Silli kokkur ásamt eiginkonu sinni eftir að hafa tekið við verðlaunum fyrir besta hamborgarann á European Street Food Awards.
Silli kokkur er þekktur fyrir öfluga veisluþjónustu sína og margverðlaunaðan matarvagn sem hefur meðal annars hlotið viðurkenningar á Götubitahátíðinni. Heimsóknir Silla kokks til Siglufjarðar hafa jafnan notið mikilla vinsælda og má búast við góðri aðsókn þegar matarvagninn snýr aftur í bæinn.
Myndir: úr einkasafni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Frétt6 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn2 dagar síðanFastagesturinn verður sífellt mikilvægari
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanFerköntuðu hamborgararnir komnir við Tryggvagötu
-
Markaðurinn3 dagar síðanTilboð fyrir mötuneyti hjá Bako Verslunartækni
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanGrunur um fölsuð vín fyrir rúmlega 80 milljónir króna
-
Markaðurinn2 dagar síðanAllt að 47 prósenta afsláttur í september
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanFrá kartöflum yfir í finnskt bygg





