Keppni
Siggi Chef hreppti titilinn Besti götubitinn 2026

Sigurður Gunnlaugsson, betur þekktur sem Siggi Chef aka Burger Jesus, hreppti titilinn Besti götubitinn 2026 á Götubitahátíðinni í Hljómskálagarðinum. Með sigrinum tryggði hann sér rétt til að keppa fyrir Íslands hönd í lokakeppni European Street Food Awards í lok september.
Sigurður Gunnlaugsson, betur þekktur sem Siggi Chef aka Burger Jesus, hreppti titilinn Besti götubitinn 2026 á Götubitahátíðinni í Hljómskálagarðinum um helgina. Með sigrinum tryggði hann sér rétt til að keppa fyrir Íslands hönd í lokakeppni European Street Food Awards, sem fram fer í lok september.
Í öðru sæti hafnaði The Food Truck og í þriðja sæti Funky Bhangra.
European Street Food Awards er stærsta götumatarkeppni heims og taka nú þátt keppendur frá 19 löndum. Á Íslandi er undankeppnin haldin árlega á Götubitahátíðinni þar sem dómnefnd velur besta götubita landsins.
Sigurvegarinn hlýtur jafnframt styrk að upphæð 1.000.000 krónur, sem ætlaður er til að styðja við rekstur og þátttöku í lokakeppninni í Evrópu.
Reynd dómnefnd valdi sigurvegarana
Það var reynslumikil dómnefnd sem lagði mat á keppendur í ár. Í henni sátu Michelin kokkurinn Þráinn Freyr Vigfússon, Margrét Erla Maack, Daníel Ólafsson, betur þekktur sem Danni Deluxx, matreiðslumaðurinn Fanney Dóra Sigurjónsdóttir, matreiðslumeistarinn Eyþór Mar Halldórsson og Elínrós Líndal.
Auk aðalverðlaunanna voru veitt verðlaun í nokkrum flokkum þar sem dómnefnd og gestir hátíðarinnar völdu sína uppáhalds götubita.
Verðlaunahafar í einstökum flokkum
Besti smábitinn 2026
1. sæti: Tasty – Doritos pokinn
2. sæti: The Food Truck – Taquitos
3. sæti: Mijita – Empanada
Besti sæti bitinn 2026
1. sæti: Churros Wagon – Funnel Cake
2. sæti: Vlaha Chimney Cakes – Original Chimney Cake
3. sæti: Mjöll Ísgerð – Mango ís (VG)
Besti borgarinn 2026
1. sæti: 2Guys – Smash Burger
2. sæti: KOMO – Burnt Butter
3. sæti: Silli kokkur
Götubiti fólksins 2026
1. sæti: Chevere EHF
2. sæti: Silli kokkur
3. sæti: Girnó
Sigurvegarar í flokkunum Besti smábitinn, Besti sæti bitinn, Besti borgarinn og Götubiti fólksins hlutu hver um sig 250.000 króna verðlaun.
Chevere EHF hlaut sérstök heiðursverðlaun
Sérstök viðurkenning, Best of Show, sem styrkt er af Pepsi, var veitt Chevere EHF fyrir framúrskarandi framlag sitt á hátíðinni.
Samstarf íslenskrar og evrópskrar götumatarkeppni
Keppnin er samstarfsverkefni Götubitans Reykjavík Street Food og European Street Food Awards. Hún hefur á síðustu árum fest sig í sessi sem einn stærsti og vinsælasti viðburður landsins fyrir unnendur götumatar.
Með sigrinum mun Siggi Chef keppa fyrir Íslands hönd gegn sigurvegurum annarra þátttökulanda þegar lokakeppni European Street Food Awards fer fram síðar á árinu.
Mynd: gotubitahatid.is
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Markaðurinn5 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or4 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn4 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Keppni4 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Markaðurinn3 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Keppni4 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september
-
Markaðurinn6 dagar síðanNýtt frá Lavazza | Qualità Oro Dark Roast



