Viðtöl, örfréttir & frumraun
Latínó-stemning tekur yfir Kolaportið um helgina
Um næstu helgi sameinar nýi matar- og menningarviðburðurinn Sabor Latino það besta úr mat, tónlist og menningu Mið- og Suður-Ameríku í Kolaportinu, Tryggvagötu 19.
Fremstu götubitavagnar landsins saman komnir
Þrír af fremstu matarvögnum landsins munu leiða saman hesta sína:
Mijita, sem býður upp á kólumbískan mat, ásamt The Food Truck og La Buena Vida, sem bæði koma frá Mexíkó.
Allir þrír vagnarnir hafa verið í fremstu röð á Götubitahátíðinni undanfarin ár. The Food Truck bar sigur úr býtum á hátíðinni í fyrra, La Buena Vida hafnaði í þriðja sæti og Mijita hlaut hin virðulegu „Best in Show“ verðlaun árið 2025.
Auk glæsilegs matarúrvals verður boðið upp á iðandi stemningu, salsadans, lifandi tónlist og fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Þar á meðal verður hefðbundin piñata og andlitsmálning fyrir yngstu kynslóðina.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir til að njóta og upplifa sanna latínó-stemningu í hjarta Reykjavíkur.
Myndir: aðsendar / Kolaportið
-
Keppni7 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Frétt5 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn6 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni4 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni2 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn1 dagur síðanLíður að jólum
-
Pistlar20 klukkustundir síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð








