Frétt
Stærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum
Götubitahátíðin, sem haldin er í samstarfi við European Street Food Awards, fer fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík dagana 17. til 19. júlí. Hátíðin hefur fest sig í sessi sem stærsti matarviðburður landsins og er von á fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Yfir 40 söluaðilar taka þátt í hátíðinni í ár með matarvagna og sölubása þar sem boðið verður upp á fjölbreytta götubita frá ýmsum heimshornum. Gestir geta meðal annars smakkað borgara, taco, asíska rétti, eftirrétti og margt fleira.
Keppt um besta götubita Íslands
Einn af hápunktum hátíðarinnar verður keppnin um besta götubita Íslands sem haldin er í samstarfi við European Street Food Awards. Sá sem hlýtur sigur verður fulltrúi Íslands á lokakeppni European Street Food Awards sem fram fer í Evrópu síðar á árinu.
Fjölbreytt skemmtidagskrá
Auk matarupplifunar verður boðið upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir gesti á öllum aldri. Á svæðinu verða meðal annars hoppukastalar og leiktæki fyrir börn, auk þess sem persónur úr Latabæ og Lína Langsokkur mæta til að skemmta yngstu gestunum.
Þar verður einnig uppblásinn Pepsi-fótboltavöllur, lukkuhjól og ýmsir vinningar. Á laugardeginum sjá DJ Danni Deluxx og DJ Fingerprint um tónlistina og síðar verður Köldvaka og brekkusöngur undir stjórn Ketils.
Aðgangur ókeypis
Götubitahátíðin fer fram í Hljómskálagarðinum í Reykjavík dagana 17. til 19. júlí. Aðgangur er ókeypis og öllum er velkomið að mæta.
Nánari upplýsingar um dagskrá og þátttakendur má finna á heimasíðu Götubitahátíðarinnar.
Mynd: gotubitahatid.is
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Markaðurinn7 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun17 klukkustundir síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um




