Viðtöl, örfréttir & frumraun
Ný bók fjallar um keppni þar sem Íslendingar hafa slegið í gegn

KOMO skipar veglegan sess í nýju bókinni Streetfood Europa, þar sem fjallað er um íslenska matarvagninn og árangur hans á European Street Food Awards árið 2024.
Samsett mynd: Instagram / komorvk
Nýverið kom út bókin Streetfood Europa eftir dönsku höfundana Asger Brodtkorb og Sean Pakbaz. Bókin er innblásin af ferð þeirra á úrslitakeppni European Street Food Awards, sem er ein stærsta og virtasta götumatarkeppni Evrópu, og dregur fram fjölbreytileika og þróun street food-menningar víðs vegar um álfuna.
Bókin byggir á heimsókn höfundanna á úrslitakeppnina sem haldin var í Saarbrücken í Þýskalandi, þar sem keppendur frá tugum landa leiddu saman hesta sína. Þar er fjallað um matarmenningu, skapandi matreiðslu og þá einstaklinga sem standa á bak við götumatarsenuna í Evrópu.
Árið 2024 átti Ísland glæsilega fulltrúa í keppninni þegar KOMO keppti fyrir hönd landsins. Alls tóku 42 keppendur frá 38 löndum þátt það árið og var keppt í sex flokkum. KOMO vakti verðskuldaða athygli og stóð uppi sem sigurvegari í tveimur flokkum.

Á myndinni eru Magnús Örn Friðriksson matreiðslumeistari, Atli Snær, eigandi KOMO og matreiðslumeistari, ásamt Styrmi Karvel Atlasyni, syni Atla. Þeir voru hluti af teyminu sem stóð að baki KOMO í keppninni.
Mynd: reykjavikstreetfood.is
Íslendingar hafa náð frábærum árangri
Árangur íslenskra keppenda í European Street Food Awards hefur verið eftirtektarverður. Fram að þessu hafa þrír íslenskir keppendur farið út fyrir hönd Íslands og keppt í European Street Food Awards.
Á undan KOMO kepptu Silli kokkur og Siggi Chef, sem báðir skiluðu einnig framúrskarandi árangri fyrir Ísland. Það undirstrikar þann styrk sem íslenskt street food hefur sýnt á alþjóðlegum vettvangi undanfarin ár.

Veitingahjónin Sigvaldi Jóhannesson „Silli kokkur“ og Elsa Blöndal Sigfúsdóttir
Mynd: facebook / European Street Food Awards
Uppskriftir og sögur víðs vegar að úr Evrópu
Streetfood Europa er rúmlega 200 síðna bók sem sameinar uppskriftir og sögur úr evrópskri götumatarmenningu. Höfundarnir leggja áherslu á rétti sem auðvelt er að útbúa, hvort sem um er að ræða heimilismatreiðslu eða innblástur fyrir veitingarekstur.
Sean Pakbaz er þekktur danskur street food-kokkur og sjónvarpsmaður, en Asger Brodtkorb hefur um árabil starfað við þróun og rekstur street food-verkefna í Danmörku. Saman gáfu þeir áður út bókina Streetfood og fylgja henni nú eftir með Streetfood Europa, þar sem kastljósinu er beint að götumatarhefðum víðs vegar um Evrópu.
View this post on Instagram
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanÞarftu að selja/kaupa notuð eða ný tæki? Þá er þessi facebook hópur klárlega fyrir þig
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Bocuse d´Or7 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn7 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt3 dagar síðanAðgerðir boðaðar gegn yfirráðum stórfyrirtækja í kjötvinnslu
-
Markaðurinn6 dagar síðanEr kominn tími til að leggja moppunni?
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanFjölbreyttar keppnir þegar Hótel- og matvælaskólinn fagnar 30 árum
-
Keppni7 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september



