Starfsmannavelta
Brixton tekinn til gjaldþrotaskipta
Hamborgarastaðurinn Brixton í Reykjavík hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta samkvæmt upplýsingum sem birtar hafa verið í Lögbirtingablaðinu.
Brixton vakti talsverða athygli við opnun sína í desember 2024, að því er fram kemur í umfjöllun mbl.is. Mikil umræða skapaðist um staðinn og fjölmargir áhrifavaldar kynntu hann á samfélagsmiðlum.
Meðal þeirra sem komu að rekstrinum við opnun voru Sigurður Gunnlaugsson, oft kallaður Siggi Chef, Róbert Aron Magnússon, eigandi Götubitahátíðarinnar, Helgi Svavar Helgason tónlistarmaður og Guðmundur Gunnarsson sem áður sá meðal annars um Hamborgarabúllu Tómasar í Berlín.
Samkvæmt upplýsingum sem fram koma í frétt mbl.is fóru Helgi Svavar og Guðmundur út úr rekstrinum fyrir um tíu mánuðum. Þá seldi Róbert Aron sinn hlut í fyrirtækinu í mars á þessu ári. Nýir eigendur voru Jón Örn Jakobsson og Helgi Magnús Hermannsson.
Á heimasíðu Brixton kemur fram að staðurinn sé lokaður vegna breytinga. Nú liggur hins vegar fyrir að félagið hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta samkvæmt upplýsingum úr Lögbirtingablaðinu.
Hægt er að lesa nánar um málið í umfjöllun mbl.is.
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel6 dagar síðanArnór Ingi stefnir hátt með Laut – opnar fyrir kvöldverð á morgun
-
Markaðurinn6 dagar síðanSpennandi starf fyrir yfirmatreiðslumann í Stykkishólmi
-
Markaðurinn6 dagar síðanVillibráðarpaté með landsliði kjötiðnaðarmanna
-
Keppni7 dagar síðanStyttist í stóru stundina hjá Kokkalandsliði Íslands
-
Markaðurinn7 dagar síðanBakarameistari Bakels heimsækir Ísland og heldur bakaranámskeið
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanMyndir: Glæsilegt kampavínsboð á Apótekinu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanÞráinn Freyr tók á móti matreiðslumeisturum
-
Markaðurinn4 dagar síðanMyndir: Vel heppnað bakaranámskeið á vegum Bakels



