Vín, drykkir og keppni
Frá síldartunnum til viskítunna

Marteinn Brynjólfur Haraldsson við eikartunnurnar á Siglufirði þar sem nýr kafli í íslenskri viskígerð er hafinn.
Mikilvægum áfanga var náð hjá Íshafi 67 Eimingu og Segli 67 Brugghúsi á dögunum þegar fyrstu eikartunnurnar voru fylltar af eðalvökva sem með tímanum verður að íslensku viskí.
Frá þessu greinir Marteinn Brynjólfur Haraldsson, eigandi Seguls 67 Brugghúss, í tilkynningu þar sem hann segir að um sé að ræða upphaf metnaðarfullrar vegferðar í íslenskri viskígerð.
Grunnurinn að viskíinu er 100 prósent íslenskt bygg sem ræktað er á Norðurlandi. Að sögn Marteins er lögð áhersla á að hvert skref í framleiðsluferlinu sé unnið af metnaði og virðingu fyrir hráefninu.
„Það er sérstök tilfinning að sjá tunnur enn á ný fylla Siglufjörð, þó með allt öðru innihaldi en áður. Þar sem síldin fyllti tunnurnar á árum áður geyma þær nú framtíð íslenskrar viskígerðar,“
segir Marteinn.
Hann segir þetta aðeins vera upphafið. Á næstu mánuðum og árum verði áfram unnið að þróun vörunnar með þolinmæði, metnaði og ástríðu, með það að markmiði að skapa einstakt íslenskt viskí sem endurspegli uppruna sinn og íslenskt handverk.
Í lok tilkynningarinnar færir Marteinn samstarfsaðilum hjá Klauf í Eyjafjarðarsveit sérstakar þakkir fyrir gott samstarf og segist hlakka til að halda þeirri vegferð áfram á komandi árum.
Myndir: facebook / Segull 67
-
Frétt6 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Keppni5 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Nemendur & nemakeppni3 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn2 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar2 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn2 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember






