Viðtöl, örfréttir & frumraun
Smassaður jólaborgari með purusteik og camembert sló í gegn – Myndir
Í nóvember, tvær síðustu helgarnar, buðu matreiðslumennirnir Daníel Pétur Baldursson og Hákon Sæmundsson upp á PopUp í Fiskbúð Fjallabyggðar á Siglufirði þar sem hinn sívinsæli Jólaborgari var á matseðlinum.
Siglfirðingar létu ekki bjóða sér það tvisvar og var straumur gesta frá upphafi, enda margir sem hafa beðið eftir jólaborgaranum í heilt ár. Þetta var í tíunda sinn sem Daníel býður upp á þennan eftirminnilega borgara sem hefur ávallt notið mikilla vinsælda.
Daníel lýsti ánægju sinni með að fá aftur tækifæri til að elda fyrir heimamenn. Hann rak veitingastaðinn Torgið um árabil við góðan orðstír og starfar nú sem yfirmatreiðslumaður á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði.
Jólaborgarinn sjálfur fékk frábærar undirtektir. Hann samanstendur af smössuðum og karamelluseruðum hamborgara í dúnmjúku brauði með sultuðum rauðlauk, rauðkáli og camembert-osti, ásamt bragðmiklu chillimæjó. Þá leikur purusteikin aðalhlutverkið, stökk, safarík og fullkomlega elduð.
Útkoman reyndist vera nákvæmlega það sem gestir vonuðust eftir og hlaut afar góðar viðtökur.
- Siglfirðingar voru ánægðir með PopUp viðburðinn
- Stökk og bragðmikil purusteik
-
Keppni6 dagar síðanBarþjónaklúbbur Íslands verðlaunaður af IBA
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun2 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Nemendur & nemakeppni4 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn3 dagar síðanLíður að jólum
-
Pistlar3 dagar síðanVið eigum matreiðslumenn í fremstu röð
-
Frétt2 dagar síðanKornax innkallar Kanilsnúðaköku
-
Markaðurinn2 dagar síðanHittumst á Stóreldhúsinu 5. – 6. nóvember









