Viðtöl, örfréttir & frumraun
Pizza pop-up og sultukynning frá Helvítis Kokkinum á Norðurlandi

Ívar Örn Hansen, Helvítis kokkurinn, og Þórey Hafliðadóttir kynna Helvítis sultur sem verða í boði fyrir norðan um páskana.
Helvítis kokkurinn leggur land undir fót um páskana og heldur norður á Siglufjörð þar sem hann mun standa fyrir sérstökum pizza pop-up viðburði á Kaffi Rauðku á Föstudaginn langa. Með honum í för er eiginkona hans, Þórey Hafliðadóttir eigandi Helvítis ehf., og saman hyggjast þau bjóða gestum upp á bæði nýja og kunnuglega bragðupplifun.
Viðburðurinn fer fram milli klukkan 15 og 21, þar sem hefðbundinn matseðill Kaffi Rauðku verður í boði samhliða sérsniðnum pizzum frá Helvítis kokkinum. Að sögn Ívars Arnar Hansen matreiðslumanns, sem flestir þekkja undir nafninu Helvítis kokkurinn, verður lögð áhersla á eldbakaðar pizzur og kröftuga bragðsamsetningu sem ætti að setja svip sinn á bæinn þann dag. Hann segir ljóst að Siglufjörður verði „flæðandi af ljúffengum eldbökuðum pizzum“ meðan á viðburðinum stendur.
Samhliða pizzaveislunni verður einnig settur upp sölubás þar sem gestir geta smakkað og keypt Helvítis sultur á sérstöku verði. Þórey segir þau alltaf taka vel í slíkar fyrirspurnir um samstarf og bæti við að sérstaklega gaman sé þegar tækifæri gefist til að ferðast út fyrir höfuðborgarsvæðið. „Það er náttúrulega ekki verra þegar við getum farið á svona fallega staði,“ segir hún.
Ferðin norður verður þó ekki einungis bundin við Siglufjörð. Á Skírdag munu þau einnig vera með kynningu í Krónunni á Akureyri frá klukkan 14 til 18. Þar gefst gestum kostur á að smakka nýjustu viðbótina í vörulínunni, Helvítis jarðarberjasultu með svörtum pipar, sem verður í fyrsta sinn kynnt á Norðurlandi, auk annarra sulta frá fyrirtækinu.
Þau hvetja sem flesta til að líta við á báðum stöðum yfir páskana og kynnast vörunum. Að þeirra sögn er ekkert skemmtilegra en að hitta fólk og deila með því því sem þau hafa verið að skapa.
Heimasíða: helvitis.is
Myndir: Veronika Guls
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun1 dagur síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Markaðurinn1 dagur síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 dagar síðanÍslenskur kokkur vekur athygli í Litháen
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanOmegn & Venner taka yfir SKÁL! við Njálsgötu
-
Keppni3 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Vín, drykkir og keppni1 dagur síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel4 dagar síðanMetnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni
-
Markaðurinn3 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir




