Vertu memm

Keppni

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Birting:

þann

Íslenskir smáframleiðendur, handverksfólk og eldpiparhausar fylltu Gamla bíó sunnudaginn 3. maí með gleði, spennu og ástríðu fyrir eldpipar.

Hátíðin byrjaði með fræðslu um ræktun eldpipars á Íslandi og útskýringum á því hvernig Scoville skalinn virkar, sem er alþjóðlegur mælikvarði styrkleika mismunandi gerða eldpipars, frá Óla Finnssyni helsta eldpiparræktanda landsins.

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Óli Finnsson garðyrkjumaður og eldpiparfrumkvöðull. Mynd: Þórey Hafliðadóttir.

Ellefu hugrakkir keppendur tókust á við eldheita áskorun

Húsið fylltist heldur betur þegar átkeppnin fór fram og voru þar ellefu hugrakkar sálir sem ákváðu að láta reyna á þolið. Tveir keppendur, Ignacia Russell kölluð Iggy og Máni Ólafsson fóru alla leið og kláruðu auðveldlega 12 umferðir af sísterkari eldpipar ásamt einni aukaumferð af öðrum sterkasta eldpipar í heimi, Carolina Reaper.

Úrslitaumferðin var þar af leiðandi hraðaumferð þar sem keppandinn sem kláraði fyrst heila sæta papriku varð sigurvegari. Það var Máni Ólafsson sem bar sigur úr býtum og varð fyrsti sigurvegari átkeppninnar. Hann stefnir að sjálfsögðu á að verja titilinn á næsta ári.

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Máni Ólafsson sigurvegari Reykjavík Chilli Festival átkeppninnar 2026. Mynd: Þórey Hafliðadóttir.

Bjartur Elí og Atli Snær fóru með sigur af hólmi

Á hátíðinni gátu gestir smakkað tólf sterkar sósur sem kepptust um tvo titla, Sósa ársins 2026 og Sósa fólksins 2026. Þátttakendur voru blanda af áhugafólki, matreiðslumönnum og sósuframleiðendum. Öflug dómnefnd sá um að gefa ómerktum sósum stig og var það Bjartur Elí Friðþjófsson, matreiðslumeistari og sous chef á ÓX, sem fékk flest stig frá dómnefndinni fyrir sósuna Universal Chef Sauce.

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Bjartur Elí Friðþjófsson matreiðslumeistari og sigurvegari Sósu ársins 2026.

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Verðlaunagripurinn fyrir Sósu ársins 2026. Mynd: Þórey Hafliðadóttir.

Verðlaunagripurinn sem var veittur fyrir Sósu ársins var hannaður og gerður af Kristínu Jónu Þorsteinsdóttur handverkskonu og öðrum skipuleggjanda hátíðarinnar.

Sósa fólksins var kosin af gestum hátíðarinnar og var það Atli Snær matreiðslumeistari og eigandi KOMO veisluþjónustu sem sigraði með miklum yfirburðum.

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Atli Snær matreiðslumeistari og eigandi KOMO veisluþjónustu, sigurvegari Sósu fólksins 2026. Mynd: Þórey Hafliðadóttir.

Dómnefndin kryddaði keppnina með fagmennsku

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Dómnefnd með sigurvegara Sósu ársins 2026. Adam Helgason, Óli Finnsson, Bjartur Elí Friðþjófsson sigurvegari, Erpur Eyvindarson, Sjöfn Þórðardóttir, Rakel María Hjaltadóttir og Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir. Mynd: Ívar Örn Hansen.

Dómnefndinni er þakkað vandað og frábært starf fyrir Reykjavík Chilli Festival en í henni voru Adam Helgason matgæðingur og frumkvöðull, Erla Þóra Bergmann Pálmadóttir matreiðslumeistari og landsliðskokkur, Erpur Eyvindarson matgæðingur og eldpiparáhugamaður, Óli Finnsson garðyrkjufræðingur og eldpiparfrumkvöðull, Rakel María Hjaltadóttir matgæðingur og líkamsræktarþjálfari og Sjöfn Þórðardóttir matgæðingur og fjölmiðlakona.

Á matarmarkaðnum var meðal annars hægt að finna sterkar sósur frá fremstu sósuframleiðendum landsins, nýjan ost frá MS sem inniheldur eldpipar, logandi kúrekanammi, ferskan eldpipar og eldpiparplöntur, handgerðar gómsætar smákökur með sterkri fyllingu, sterkt sinnep, sultur og meira að segja ís með eldpipar.

Ívar Örn Hansen sló í gegn sem kynnir dagsins

Matreiðslumaðurinn Ívar Örn Hansen betur þekktur sem Helvítis kokkurinn, eigandi Helvítis ehf. og formaður Samtaka smáframleiðenda matvæla, sló heldur betur í gegn sem kynnir hátíðarinnar.

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Ívar Örn Hansen kynnir dagsins. Mynd: Andrea Anna Ingimarsdóttir.

Skipuleggjendur hátíðarinnar vilja óska sigurvegurum dagsins innilega til hamingju með verðskuldaða sigra. Reykjavík Chilli Festival vill koma á framfæri sérstöku þakklæti til Bola og Sölufélags garðyrkjumanna fyrir frábært samstarf og öllum gestum og þeim sem komu að hátíðinni á einn eða annan hátt.

Myndasafn: Litríkur matarmarkaður og logandi stemning á Chilli Festival

Skipuleggjendur hátíðarinnar Þórey Hafliðadóttir eigandi Helvítis ehf. og Kristín Jóna Þorsteinsdóttir eigandi Bongo Design. Mynd: Veronika Guls.

Skipulag hafið fyrir Reykjavík Chilli Festival 2027

Reykjavík Chilli Festival er einróma vel heppnuð og klárlega komin til að vera. Litríkt úrval af bragðsterkum matvörum ásamt einlægum áhuga beggja megin við smakkborðin einkenndi daginn. Hvort sem fólk vildi skoða, smakka eða kaupa þá fór sennilega enginn af hátíðinni vonsvikinn. Kallið eftir endurtekningu var hátt og er skipulag strax byrjað fyrir Reykjavík Chilli Festival 2027.

Smári er matreiðslumaður að mennt, en hann hefur starfað við fagið til fjölda ára, bæði sem starfsmaður og rekstraraðili. Hægt er að hafa samband við Smára á netfangið [email protected] Skoða allar greinar höfundar hér >>

Auglýsingapláss

Vínkjallarinn

Auglýsingapláss

Ekki missa af neinu

Fréttabréf

Veldu eitt eða allt af eftirtöldu:

Mest lesið