Frétt
Ákærður fyrir að bera fram maura á Michelin-stað
Eigandi tveggja Michelin-stjörnu veitingastaðar í Seúl í Suður-Kóreu hefur verið ákærður fyrir að hafa notað maura í matargerð. Samkvæmt visir.is á hann yfir höfði sér allt að eins árs fangelsi og sekt sem nemur um tveimur milljónum íslenskra króna.
Eigandinn hefur viðurkennt að maurar hafi verið notaðir í fáum réttum, aðallega sem skraut, en segir að gestir hafi verið upplýstir um það og getað valið annað skraut.
Maurar eru ekki meðal þeirra tíu skordýrategunda sem heimilt er að nota í matargerð í Suður-Kóreu. Heilbrigðisyfirvöld segja jafnframt að magn þungmálma í maurunum hafi mælst 55 sinnum hærra en í öðrum skordýrum sem leyfð eru til manneldis.
Nánar má lesa um málið á visir.is.
Mynd: úr safni
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel7 dagar síðanNýr veitingastaður við Skólavörðustíg
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanMortensaften – biskupinn sem gæsirnar komu upp um
-
Markaðurinn3 dagar síðan„Súkkulaði og mascarpone reyndust ótrúlega góð blanda“
-
Markaðurinn3 dagar síðanPappírssalan á Stóreldhúsinu 2026
-
Markaðurinn3 dagar síðanHrekkjavöku kökur
-
Nemendur & nemakeppni6 dagar síðanMatreiðslunemar buðu upp á götumat frá fjórum löndum
-
Markaðurinn5 dagar síðanLíður að jólum
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel1 dagur síðanLILJA opnar í Kvosinni: Kristófer og Natalia með nýjan veitingastað




