Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Nýr veitingastaður með norræna matargerð opnar í Norræna húsinu
Nýr veitingastaður opnar í Norræna húsinu í september: Laut býður upp á norræna matargerð frá morgni til kvölds.
Matreiðslumaðurinn Arnór Ingi Bjarkason, ásamt bróður sínum Sigurði Birni og foreldrum þeirra, Laufeyju og Bjarka, opnar nýjan veitingastað í Norræna húsinu í september næstkomandi. Staðurinn hefur fengið nafnið Laut og mun bjóða upp á fjölbreytta upplifun, allt frá léttum hádegisverðum yfir í metnaðarfulla kvöldverðarseðla.
Arnór Ingi er eigandi og yfirkokkur á veitingastaðnum Skóg í Vilnius, sem er í hinum virta Michelin-guide, en áður stýrði hann eldhúsinu á Red Brick þar sem staðurinn hlaut meðal annars hina eftirsóttu Grænu Michelin-stjörnu fyrir sjálfbærni. Skóg verður áfram opinn og í fullum rekstri, og mun starfsemin á Íslandi haldast í hendur við reksturinn ytra.
Sjá einnig: Arnór Ingi og Lina fá frábærar viðtökur með Skóg
Nafn staðarins vísar í skjólsæla dæld í landslaginu, stað til að nema staðar og njóta. Hugmyndafræði Lautar byggir á virðingu fyrir íslenskri náttúru og hráefnum úr nærumhverfinu. Matseðillinn mun sækja innblástur í íslenska náttúru og sjávarfang, þar sem kappkostað er að nota eingöngu íslenskt hráefni, en leyft að sækja gæðahráefni frá hinum Norðurlöndunum þegar þörf er á.
Fjölbreytt upplifun frá morgni til kvölds
Á daginn: Opið verður frá þriðjudögum til sunnudaga milli kl. 10:00 og 17:00. Boðið verður upp á rétt dagsins í hádeginu, ljúffengar léttar veitingar og kaffi í notalegu umhverfi Norræna hússins.
Á kvöldin: Frá miðvikudagskvöldum til laugardagskvölda breytist ásýnd staðarins og boðið verður upp á metnaðarfullan margrétta smakkseðil þar sem matreiðslulist og norræn hráefni verða í fyrirrúmi.
„Við hlökkum mikið til að opna dyrnar í Norræna húsinu og taka á móti gestum, hvort sem þeir leita að skjólsælum stað fyrir kaffibolla og hádegisverð eða fulla upplifun á kvöldseðlinum,“
segir Arnór Ingi Bjarkason, yfirkokkur og einn af eigendum Lautar.
Heimasíða og samfélagsmiðlar:
www.lautrestaurant.is
www.instagram.com/lautrestaurant
www.facebook.com/lautreykjavik
Myndir: aðsendar
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun4 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn2 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Frétt6 dagar síðanBeint frá býli dagurinn haldinn um land allt
-
Frétt5 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Bocuse d´Or21 klukkustund síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Keppni1 dagur síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Frétt6 dagar síðanHalla Sif meðal 100 kvenhetja landbúnaðarins
-
Markaðurinn23 klukkustundir síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti





