Viðtöl, örfréttir & frumraun
Michelin-kvöld á Moss með Tom Aikens og Marqués de Murrieta
Einstakur viðburður á veitingastaðnum Moss
Þann 11. apríl fær Moss á The Retreat Hotel við Bláa Lónið heimsókn frá góðum gestum. Michelin-kokkurinn Tom Aikens frá Bretlandi og vínframleiðandinn Marqués de Murrieta sækja Moss heim og munu bjóða upp á einstaka kvöldstund í óviðjafnanlegu umhverfi í samstarfi við yfirmatreiðslumeistara Moss, Agga Sverrisson.
Tveir meistarar mætast
Þungamiðja kvöldsins eru sköpunarverk þessara tveggja einstöku matreiðslumeistara, en Tom og Aggi deila sterkri sýn á matargerðarlist þar sem árstíðarbundin hráefni, sjálfbærni og virðing fyrir umhverfinu eru í forgrunni.
Á boðstólnum verða sex réttir sem glæða þessa sýn þeirra lífi ásamt sérvöldum úrvalsvínum frá Marqués de Murrieta.
Agnar Sverrisson
Yfirmatreiðslumeistari Moss lærði hjá hinum heimsþekkta Raymond Blanc og fór síðar fyrir Texture Restaurant & Champagne Bar í London, þar sem hann viðhélt Michelin-stjörnu í áratug. Eftir heimkomu hefur Aggi verið yfirmatreiðslumeistari Moss, þar sem hann töfrar fram ævintýralegt matarferðalag ásamt teymi sínu. Gæði hráefna eru ástríða hjá Agga og hann leggur sig fram um að útvega ferskasta árstíðarbundna hráefni sem hann getur fyrir síbreytilega matseðla sína. Moss hlaut sína fyrstu Michelin-stjörnu árið 2023.
Tom Aikens
Tom Aikens hefur getið sér sérstaklega gott orð sem einn af fremstu og áhrifamestu matreiðslumeisturum Bretlandseyja. Allt frá unga aldri lærði Tom að nýta ferskustu hráefni sem fáanleg voru í nærumhverfinu sem hefur mótað starfsframa hans og sýn á matreiðslu. Greina má skýr frönsk áhrif í nálgun hans, en þegar Tom starfaði á Pied-à-Terre í London varð hann yngsti matreiðslumeistarinn til þess að hljóta tvær Michelin-stjörnur.
Marqués de Murrieta
Marqués de Murrieta var stofnað árið 1852 og er á meðal þeirra fremstu á sviði Rioja-víngerðar. Aðalsmerki þeirra eru stýrð gerjun, tunnutíð og skýr áhersla á vín sem gerð eru til þess að eldast vel.
Vínekran vinnur nær alfarið með ávexti sem ræktaðir eru á eigin landi og hafa þar með fulla stjórn á vínræktinni og samræmi á milli árganga. Þeirra helsta rauðvínsþrúga er Tempranillo sem er burðarás framleiðslunnar ásamt Graciano, Mazuelo og Garnacha. Viura er höfuðþrúgan hvað hvítvínsframleiðslu varðar.
Kvöldstund í hjarta náttúrunnar
Þegar matargerðarlist tveggja Michelin-kokka mætir úrvalsafurð Marqués de Murrieta er næsta víst að kvöldið verður eftirminnilegt. Þetta er viðburður sem enginn matarunnandi má láta framhjá sér fara.
Myndir: aðsendar
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel5 dagar síðanAtli Snær og Einar Örn opna Chikin á Akureyri
-
Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel3 dagar síðanNýtt bakarí opnað á Húsavík eftir nokkurra ára hlé
-
Frétt2 dagar síðanBrotist inn í vinsælt sælkerabakarí í Reykjavík
-
Frétt2 dagar síðanÁttu þessa kokteilsósu? Hún hefur verið innkölluð
-
Markaðurinn5 dagar síðanGarri stækkar vöruúrval sitt fyrir veitingageirann
-
Markaðurinn5 dagar síðanÍsey fagnar væntanlegum sólmyrkva með nýju skyrbragði
-
Frétt4 dagar síðanÁttu þessa grillpönnu? Þá skaltu hætta að nota hana strax
-
Frétt1 dagur síðanStærsti matarviðburður landsins fram undan í Hljómskálagarðinum







