Nýtt bakarí, veitingahús, fisk- og kjötbúð og hótel
Metnaðarfullur veitingastaður Róót opnar í Höfðatorgsturni

Forsvarsmenn Heima og Múlakaffis við opnun Róót í endurnýjuðum Glerskála í Höfðatorgsturni.
Mynd: aðsend.
Nýr veitingastaður, Róót, hefur opnað í Glerskálanum í Höfðatorgsturninum í Katrínartúni 2 eftir umfangsmikla endurhönnun og endurbætur á rýminu. Heimar, sem eiga og reka fasteignina, hafa staðið að framkvæmdunum, en Róót er nýr veitingastaður á vegum Múlakaffis.
Heimar og Róót fögnuðu opnuninni sameiginlega á dögunum og buðu starfsfólki fyrirtækja í húsinu til veislu. Fjölmennt var í Glerskálanum þar sem Róót sá um veitingar og lifandi tónlist hélt uppi stemningunni.
Róót er fyrst og fremst hádegisverðarstaður sem leggur áherslu á vandað hráefni, fjölbreytni og bragðgóðan mat sem unninn er af alúð. Hugmyndafræði staðarins sækir innblástur í matarhefðir víðs vegar að úr heiminum þar sem meðal annars er horft til fjölbreytni plantna, árstíðabundins hráefnis og þess undirbúningstíma sem góður matur krefst.
Róót er opinn öllum í hádeginu frá kl. 11–14 alla virka daga og er opnun staðarins kærkomin viðbót við veitingaflóruna fyrir þann mikla fjölda fólks sem starfar í Katrínartúni, Borgartúni og nágrenni.
Samhliða opnun Róót hefur Glerskálinn sjálfur fengið nýtt yfirbragð. Rýmið hefur verið endurhannað og tekið í gegn með áherslu á að skapa bjart, hlýlegt og vandað umhverfi þar sem hönnun, lýsing og gróður mynda umgjörð um veitingastaðinn og sameiginlegt rými hússins.
„Við erum gríðarlega stolt af þessu verkefni og því hvernig til hefur tekist við endurhönnun á rýminu. Katrínartún 2 er hágæða skrifstofubygging þar sem við leggjum mikla áherslu á gott starfsumhverfi og hátt þjónustustig.
Róót er frábær viðbót við húsið og ekki síður fyrir allt það fólk sem starfar hér á Borgartúnssvæðinu,“
segir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima.
Hjá Múlakaffi hefur jafnframt verið lögð mikil áhersla á að Róót fái skýra sérstöðu og eigin ásýnd sem veitingastaður.
„RÓÓT endurspeglar vel þá miklu reynslu og þekkingu sem hefur byggst upp hjá Múlakaffi allt frá árinu 1962, en um leið þann metnað sem við höfum til að þróast stöðugt og skapa nýjar matarupplifanir.
Hér erum við ekki einfaldlega að opna enn einn hádegisverðarstaðinn, heldur vandaðan og metnaðarfullan veitingastað þar sem frábært starfsfólk, gott hráefni og fagmennska fá að njóta sín.
Kjartan Gíslason og Bjarki Freyr Gunnlaugsson hafa verið drifkraftarnir í mótun RÓÓT og hafa með reynslu sinni, skýrri sýn og einstakri tilfinningu fyrir góðum mat skapað stað sem við erum afar stolt af.
Við erum sannfærð um að RÓÓT eigi eftir að verða eftirsóttur áfangastaður fyrir alla sem starfa eða eiga leið um Borgartúnssvæðið,“
segir Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis.
-
Keppni4 dagar síðanOddný Ingólfsdóttir keppti fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramóti vínþjóna í Portúgal
-
Markaðurinn5 dagar síðanJólagjöfin sem fær fólk út að njóta
-
Keppni6 dagar síðanFjórir ungir fagmenn tryggðu sér sæti í Norrænu nemakeppninni
-
Markaðurinn6 dagar síðanGarri opnar nýja vefverslun 27. október
-
Keppni6 dagar síðanPétur Kolka vinnur sinn flokk í Lotus Prestige Cup í Macau
-
Markaðurinn4 dagar síðanFerðalag fyrir bragðlaukana
-
Frétt3 dagar síðan35 gestir veiktust eftir heimsókn á þriggja Michelin-stjörnu veitingastað
-
Vín, drykkir og keppni7 dagar síðanDe Kuyper valinn líkjörframleiðandi ársins áttunda árið í röð



