Viðtöl, örfréttir & frumraun
Tveir þekktir matreiðslumeistarar ganga til liðs við Múlakaffi
Hið rótgróna veitingafyrirtæki Múlakaffi heldur áfram að styrkja stöðu sína sem leiðandi afl í íslenskri veisluþjónustu með komu tveggja framúrskarandi matreiðslumeistara, Kjartans Gíslasonar og Sigurðar Ívars Sigurðssonar.
Frá upphafi hefur Múlakaffi lagt ríka áherslu á að laða að sér fremstu matreiðslumenn landsins, efla þekkingu innan fyrirtækisins og feta nýjar slóðir í þróun matseðla og framsetningar. Meðal þeirra sem starfa hjá Múlakaffi eru listakokkurinn Eyþór Rúnarsson og Ísak Aron Jóhansson, nýkrýndur Kokkur ársins, og fyrirliði íslenska kokkalandsliðsins.
Nýverið bættust tveir öflugir liðsmenn í hópinn þegar matreiðslumeistararnir Kjartan Gíslason, oft kenndur við Omnom, og Sigurður Ívar Sigurðsson gengu til liðs við teymið, að því er fram kemur í tilkynningu frá Múlakaffi.
Úr súkkulaði í veislukræsingar
Kjartan Gíslason er landsmönnum vel kunnur sem einn af stofnendum hinnar víðfrægu Omnom súkkulaðigerðar. Hann er menntaður matreiðslumeistari og hefur starfað á heimsklassa veitingastöðum bæði hérlendis og erlendis. Kjartan býr yfir víðtækri og fjölbreyttri reynslu og er þekktur fyrir ástríðu sína fyrir nýsköpun og óþreytandi tilraunastarfi í matargerð.
Í sinni nálgun leggur Kjartan megináherslu á gæði og uppruna hráefna, ásamt sjálfbærni og gagnsæi í allri vinnslu. Með komu sinni til Múlakaffis styrkir hann veisluþjónustuteymið enn frekar og mun þekking hans án efa nýtast vel í þeim fjölbreyttu og spennandi verkefnum sem framundan eru.
Sigurður Ívar kominn heim
Sigurður Ívar Sigurðsson er einn af fremstu matreiðslumeisturum landsins. Leiðir hans og Múlakaffis lágu fyrst saman þegar hinn rómaði veitingastaður Nauthóll var rekinn undir merkjum fyrirtækisins. Þar gegndi Sigurður, ásamt Eyþóri Rúnarssyni, lykilhlutverki í kokkateymi staðarins sem gerði Nauthól að einum vinsælasta veitingastað borgarinnar.
Það má því með sanni segja að Sigurður Ívar sé kominn aftur heim.
Hjá Múlakaffi mun Sigurður Ívar leiða fjölbreytt sérverkefni. Auk veisluþjónustunnar sérhæfir fyrirtækið sig í þjónustu við stór erlend kvikmyndaverkefni sem og sérsniðinni matarþjónustu fyrir fjölbreytt fyrirtæki og stofnanir víðsvegar um landið.
„Kjartan og Siggi færa okkur nýja strauma, ferskar hugmyndir og dýrmæta reynslu sem styrkir teymið okkar til muna. Við bjóðum þá hjartanlega velkomna og hlökkum til komandi verkefna,“
segir Guðríður María Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Múlakaffis.
Myndir: úr einkasafni
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun6 klukkustundir síðanFylgstu vel með veitingabransanum og fáðu nýjustu fréttirnar beint í æð ….
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanRúmlega sex metra brauðterta sló í gegn á Menningarnótt
-
Markaðurinn3 dagar síðanSölumaður og Brand Ambassador óskast í hótel- og veitingadeild Ölgerðarinnar
-
Bocuse d´Or2 dagar síðanVið erum að stækka Bocuse d’Or teymið
-
Markaðurinn2 dagar síðanNotaðar vörur fyrir veitingastaði og mötuneyti
-
Frétt6 dagar síðanVöxtur í veitingarekstri Jamie Oliver
-
Keppni3 dagar síðanEnn einn stórsigurinn hjá Róberti Aroni
-
Keppni2 dagar síðanLeita að fulltrúa Íslands í alþjóðlega matreiðslukeppni – umsóknarfrestur til 1. september






