Vín, drykkir og keppni
C.V.N.E. valið evrópski framleiðandi ársins
Nú á dögunum fór fram “Sommerlier Wine Awards”, ein stærsta og áhrifamesta vínkeppnin í Bretlandi. Það sem gefur keppninni aukið vægi er að dómnefnd samanstendur aðeins af fólki úr bransanum sem vinnur beint með neytendum á hverjum degi; Vínþjónar, vínkaupendur, ráðgjafar og annað fólk sem sér um að setja saman vínlista fyrir fremstu veitingastaði og lúxushótel Bretlands.
Vínframleiðandinn C.V.N.E. (Cune, Imperial, Contino, Vina Real o.fl.) var af dómnefnd valinn framleiðandi ársins í Evrópu og hlutu vín frá C.V.N.E. einnig tvö gull, eitt silfur og ein bronsverðlaun. Dómnefnd talaði sérstaklega um stöðugleika í gæðum á sama tíma vín C.V.N.E. næðu yfir afar fjölbreytt svið víngerðar.
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun5 dagar síðanFimm matreiðslumeistarar tilnefndir til Íslensku menntaverðlaunanna fyrir námsefnið Matreiðslu
-
Viðtöl, örfréttir & frumraun3 dagar síðanTvö stór afmæli hjá Café Riis á Hólmavík
-
Markaðurinn5 dagar síðanUm 60 gestir á bransahittingi Ó.J&K – ISAM á Akureyri
-
Vín, drykkir og keppni5 dagar síðanPítan í Skipholti fær sinn eigin bjór frá RVK Bruggfélagi
-
Keppni7 dagar síðanMikill skortur á fagmenntuðum framreiðslumönnum – fimm í námi við VMA
-
Frétt4 dagar síðanJökull Alexander Egilsson tekur við rekstri tíu hótela um land allt
-
Markaðurinn7 dagar síðanGerðu verðsamanburð áður en þú kaupir
-
Vín, drykkir og keppni4 dagar síðanÞjófar stálu 30.000 vínflöskum að verðmæti 700 milljóna króna




